fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
Fókus

Kanye West eyddi öllu af Instagram eftir að hafa birt mjög djarfa mynd af eiginkonunni

Fókus
Þriðjudaginn 30. janúar 2024 14:29

Mynd/Getty/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rapparinn Kanye West byrjaði skyndilega að vera virkur á ný á samfélagsmiðlum í byrjun árs og fór að birta djarfar myndir af eiginkonu sinni, Biöncu Censori.

Myndirnar hafa verið mjög umdeildar og virtist sú nýjasta hafa gert útslagið. Á myndinni er Bianca í eldhúsinu, í einhvers konar g-strengs samfellu, í leðurstígvélum og með einhvers konar leður gimp-grímu yfir höfðinu.

Kanye eyddi öllu af Instagram eftir að hafa fengið rosalega gagnrýni eftir að hafa birt þessa mynd.

Margir hafa haldið því fram að með því að birta þessar myndir sé Kanye að niðurlægja Biöncu, sérstaklega í ljósi þess að rapparinn hefur áður opinberlega gagnrýnt, og gert lítið úr, fyrrverandi eiginkonu sinni, Kim Kardashian, fyrir að birta of „djarfar“ og „kynferðislegar“ myndir á samfélagsmiðlum.

Sjá einnig: Kanye West birti umdeildar djarfar myndir af eiginkonu sinni

Kanye birti þessar myndir í byrjun janúar.
Kanye birti þessar myndir í byrjun janúar.

Vinkonur hennar hafa áhyggjur

Í nóvember greindu erlendir miðlar frá því að vinkonur Biöncu reyndu að grípa í taumana og fá vinkonu sína til að slíta sambandinu við rapparann. Það virðist ekki hafa gengið.

Bianca er ástralskur arkitekt og byrjaði að starfa fyrir fyrirtæki Kanye, Yeezy, árið 2020. Þau hafa verið saman síðan byrjun árs 2023 og eru sögð hafa gifst við leynilega athöfn um miðjan janúar.

Í september sögðust vinkonur hennar hafa miklar áhyggjur af henni og að Kanye væri að „reyna að breyta henni í róttækari útgáfu af fyrrverandi eiginkonu hans, Kim Kardashian.“

Sjá einnig: Vinkonur eiginkonu Kanye West hafa miklar áhyggjur af hegðun hennar – „Hún er ekki svona“

Fatastíll og útlit hennar hefur tekið rosalegum breytingum eftir að hún kynntist rapparanum en það er þekkt að Kanye hafi áhrif á klæðaburð eiginkvenna sinna og kærasta.

Í sumar voru Bianca og Kanye á ferð um Ítalíu og vakti klæðaburður hennar mikla athygli og talsverða reiði. Fjölmargir kölluðu eftir því að Bianca yrði handtekin fyrir að særa blygðunarsemi en hún klæddist litlu öðru en gegnsæjum sokkabuxum og litlum toppum. Eitt kvöldið gekk hún um með púða í stað þess að vera í bol.

Þau voru einnig sett í lífstíðarbann eftir ósæmilegt atvik á bát.

Sjá einnig: Heldur áfram að hneyksla á Ítalíu – Svona var fatastíllinn áður en hún giftist Kanye

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Fertugsafmælisferð Guðbjargar breyttist í martröð: Kom að kærastanum með annarri konu sem réðst á hana – „Síðan henti hann mér í rúmið og misnotaði mig kynferðislega“

Fertugsafmælisferð Guðbjargar breyttist í martröð: Kom að kærastanum með annarri konu sem réðst á hana – „Síðan henti hann mér í rúmið og misnotaði mig kynferðislega“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vilhjálmur standi í vegi fyrir sáttum og beri nú sjálfur sök á stöðunni

Vilhjálmur standi í vegi fyrir sáttum og beri nú sjálfur sök á stöðunni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fær annað tækifæri til að finna ástina

Fær annað tækifæri til að finna ástina
Fókus
Fyrir 4 dögum

Haukur Morthens 100 ára – Heiðurstónleikar í Hörpu sunnudaginn 26. maí

Haukur Morthens 100 ára – Heiðurstónleikar í Hörpu sunnudaginn 26. maí