Fókus

Sonur Birgittu Lífar og Enoks kominn með nafn

Mynd
Mynd/Instagram

Áhrifavaldurinn og World Class-erfinginn Birgitta Líf Björnsdóttir og Enok Jónsson hafa gefið syni sínum nafn.

Birgitta Líf er einnig raunveruleikastjarna og markaðsstjóri World Class. Enok er sjómaður og iðnaðarmaður.

Þau eignuðust sitt fyrsta barn þann 8. febrúar síðastliðinn og skírðu hann um helgina. Hann fékk nafnið Birnir Boði Enoksson.

Millinafnið er í höfuðið á afa Birgittu, Jóni Boða, og bróður hennar, Birni Boða.

Fókus óskar fjölskyldunni innilega til hamingju með fallegt nafn.

Prófaðu að endurhlaða síðuna ef þú sérð ekki myndina hér að neðan.