Fókus

Birgitta Líf og Enok birta mynd af nýfæddum syninum - „Öll heimsins ást“

Mynd
Mynd/Instagram @birgittalif

Stjörnuparið Birgitta Líf Björnsdóttir og Enok Vatnar Jónsson eignuðust son í lok síðustu viku. Drengurinn fæddist þann 8. febrúar síðastliðinn en Birgitta Líf, sem er einn vinsælasti áhrifavaldur landsins, birti fallega mynd af drengnum nú í dag. "Öll heimsins ást," sagði hin nýbakaða móðir, augljóslega afar hreykin af drengnum fallega.

Komu drengsins hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu en mikla athygli vakti í þjóðfélaginu þegar parið tilkynnti um kyn erfingjans með því að sleppa bláum reyk úr þyrlu sem flaug ofan við heimili þeirra í Skuggahverfinu.

Hér má sjá færslu Birgittu Lífar: