Þetta er klukkbeita!
Berglind Festival skorar á þig að styrkja Ljósið.
Klukk, þú ert’ann!
Ljósið safnar fyrir stærra húsnæði!
Einn af hverjum þremur greinist með krabbamein á lífsleiðinni og einn af hverjum þremur sem greinist á Íslandi sækir endurhæfingu í Ljósið. Þessi mikla aðsókn veldur því að húsakynni Ljóssins eru orðin of lítil.
Þegar þú styrkir Ljósið með Klukki rennur upphæðin í húsnæðissjóð Ljóssins. Þitt klukk tryggir að Ljósið getur getur áfram veitt krabbameinsgreindum fría endurhæfingu. Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. Markmið Ljóssins er að fólk fái sérhæfða endurhæfingu- og stuðning, þar sem fagfólk aðstoðar við að byggja upp líkamlegt og andlegt þrek, auk þess að fá stuðning við að setja sér marmið sem auak daglega virkni og hafa þannig áhrif á lífsgæði almennt. Mánaðarlega leita yfir 600 manns til Ljóssins en á síðasta ári voru komur í endurhæfingaúrræði tæplega 30 þúsund talsins.
Ljósið hefur nú farið af stað með nýja herferð með yfirskriftinni „Klukk, þú ert’ann“, en þessi góðkunni frasi er ekki bara vísun í þá sláandi staðreynd að um þriðjungur fólks greinist með krabbamein einhvern tímann á lífsleiðinni heldur er líka um að ræða áskorun á fyrirtæki, einstaklinga og félög að klukka hvert annað og styrkja starfsemina.
Styrktu Ljósið hér.
Eins er hægt að leggja Ljósinu lið með millifærslu á eftirfarandi bankareikning:
Reikningsnúmer: 0130-26-410520
Kennitala: 590406-0740
Einnig er hægt að styrkja með AUR appinu. Sláðu inn notandanafnið @ljosid og sendu þitt framlag.