fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Þessi eru tilnefnd til Íslensku hljóðbókaverðlaunanna

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Miðvikudaginn 29. mars 2023 09:52

Mynd frá verðlaunahátíðinni í fyrra. Mynd/Árni Rúnarsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslensku hljóðbókaverðlaunin, Storytel Awards, verða veitt við hátíðlega athöfn í Norðurljósum í Hörpu í kvöld í fjórða sinn. Um er að ræða árlegan viðburð þar sem hljóðbókaunnendur, útgefendur, höfundar og lesarar fagna saman útgáfu vönduðustu hljóðbóka ársins. Hugleikur Dagsson verður kynnir kvöldsins auk þess sem kunnir skemmtikraftar stíga á stokk.

Verðlaun verða veitt í sex flokkum auk þess sem veitt verða sérstök heiðursverðlaun fyrir ómetanlegt framlag eða framúrskarandi verk á sviði hljóðbóka. Í ár verða í fyrsta sinn veitt sérstök verðlaun fyrir hljóðseríu ársins en það eru sögur í nokkrum hlutum þar sem hljóðheimurinn spilar stórt hlutverk, í sumum verkum eru einnig leiklesnar senur og frumsamin tónlist.

Að undangenginni almenningskosningu fóru tilnefndar bækur fyrir sérstakar fagdómnefndir. Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona og lesari hjá Storytel er formaður aðaldómnefndar, Rebekka Sif Stefánsdóttir höfundur er formaður barna- og ungmennadómnefndar og loks er Gunnar Árnason, einn fremsti hljóðtæknimaður landsins, formaður hljóðseríudómnefndar. Dómnefndir höfðu það að leiðarljósi að líta heildstætt á hvert verk þar sem vandaður lestur á góðu ritverki getur bætt miklu við upplifun lesandans. Því verða ekki aðeins rithöfundar verðlaunaðir heldur einnig lesarar hljóðbókanna og meðal tilnefndra lesara í ár er fjöldi landsþekktra leikara sem ljáð hafa sögupersónum rödd sína á undangengnu ári.

Að sögn Lísu Bjarkar Óskarsdóttur, framkvæmdastjóra Storytel á Íslandi er ánægjulegt er að sjá að bæst hefur í flóru tilnefndra útgefenda:

„Útgefendur á Íslandi eru í auknum mæli að framleiða hljóðbækur sem er mikið ánægjuefni fyrir íslenska hlustendur. Í fyrra komu út um 300 hljóðbækur og 200 rafbækur á íslensku hjá Storytel. Hlustendur Storytel á Íslandi hafa aðgang að þúsundum bóka á fimm tungumálum en yfir 80% hlustunar og lesturs er á íslensku.“ segir Lísa Björk enn fremur.

Eftirfarandi rithöfundar, þýðendur og lesarar hljóta tilnefningu fyrir verk sín til Íslensku hljóðbókaverðlaunanna, Storytel Awards 2023:

Skáldsögur

Bréfið

Höfundur: Kathryn Hughes

Þýðandi: Ingunn Snædal

Lestur: Sara Dögg Ásgeirsdóttir

Útgefandi: Storyside

Konan hans Sverris

Höfundur: Valgerður Ólafsdóttir

Lestur: Margrét Örnólfsdóttir

Útgefandi: Benedikt bókaútgáfa

Sjö eiginmenn Evelyn Hugo

Höfundur: Taylor Jenkins Reid

Þýðandi: Sunna Dís Másdóttir

Lestur: Erna Hrönn Ólafsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Sólveig Guðmundsdóttir Útgefandi: Bókabeitan

Tilfinningar eru fyrir aumingja

Höfundur: Kamilla Einarsdóttir

Lestur: Saga Garðarsdóttir

Útgefandi: Bjartur

Þegar fennir í sporin

Höfundur: Steindór Ívarsson

Lestur: Lára Sveinsdóttir, Stefán Jónsson

Útgefandi: Storyside

Glæpasögur

Björninn sefur

Höfundur: Emelie Schepp

Þýðandi: Kristján H. Kristjánsson

Lestur: Kristján Franklín Magnús

Útgefandi: MTH útgáfa

Dauðaleit

Höfundur: Emil Hjörvar Petersen

Lestur: Hjörtur Jóhann Jónsson

Útgefandi: Storytel Original

Horfnar

Höfundur: Stefán Máni

Lestur: Rúnar Freyr Gíslason

Útgefandi: Sögur útgáfa

Þernan

Höfundur: Nita Prose

Þýðandi: Magnea J. Matthíasdóttir

Lestur: Kristín Lea Sigríðardóttir

Útgefandi: Forlagið

Þú sérð mig ekki

Höfundur: Eva Björg Ægisdóttir

Lestur: Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Haraldur Ari Stefánsson, María Dögg Nelson, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Sigríður Láretta Jónsdóttir, Þórey Birgisdóttir

Útgefandi: Bjartur

Óskáldað efni

11.000 volt: Þroskasaga Guðmundar Felix

Höfundur: Erla Hlynsdóttir

Lestur: Rúnar Freyr Gíslason

Útgefandi: Sögur útgáfa

Elspa – saga konu

Höfundur: Guðrún Frímannsdóttir

Lestur: Valgerður Guðnadóttir

Útgefandi: Sögur útgáfa

Klettaborgin

Höfundur: Sólveig Pálsdóttir

Lestur: Sólveig Pálsdóttir

Útgefandi: Storyside

Sprakkar

Höfundur: Eliza Reid

Lestur: Eliza Reid, Maríanna Clara Lúthersdóttir

Útgefandi: Forlagið

Veran í moldinni – hugarheimur matarfíkils í leit að bata

Höfundur: Lára Kristín Pedersen

Lestur: Þuríður Blær Jóhannsdóttir

Útgefandi: Sögur útgáfa

Barna- og ungmennabækur

Kennarinn sem kveikti í

Höfundur: Bergrún Íris Sævarsdóttir

Lestur: Árni Beinteinn Árnason

Útgefandi: Bókabeitan

Litla hafmeyjan

Höfundur: Anna Bergljót Thorarensen

Lestur: Andrea Ösp Karlsdóttir, Anna Bergljót Thorarensen, Sigsteinn Sigurbergsson, Stefán Benedikt Vilhelmsson, Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir, Árni Beinteinn Árnason, Þórunn Lárusdóttir Útgefandi: Leikhópurinn Lotta

Salka: Tölvuheimurinn

Höfundur: Bjarni Fritzson

Lestur: Þórdís Björk Þorfinnsdóttir

Útgefandi: Storyside

Skuggabrúin

Höfundur: Ingi Markússon

Lestur: Haraldur Ari Stefánsson, Jóhann Sigurðarson, Álfrún Helga Örnólfsdóttir Útgefandi: Storytel Original

Trölladans

Höfundar: Friðrik Sturluson, Guðmundur Ólafsson

Lestur: Birna Pétursdóttir, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Guðmundur Ólafsson, Hallgrímur Ólafsson, Jóhann Sigurðarson, Mikael Emil Kaaber, Orri Huginn Ágústsson, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Sigurjón Kjartansson, Stefán Hilmarsson, Vignir Rafn Valþórsson, Árni Tryggvason

Útgefandi: Storytel Original

Ljúflestur

Litla bakaríið við Strandgötu

Höfundur: Jenny Colgan

Þýðandi: Ingunn Snædal

Lestur: Esther Talía Casey

Útgefandi: Angústúra

Sagan af Hertu

Höfundur: Anna Sundbeck Klav

Þýðandi: Herdís Magnea Hübner

Lestur: Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir

Útgefandi: Storytel Original

Veðurteppt um jólin

Höfundur: Sarah Morgan

Þýðendur: Marta Hlín Magnadóttir, Birgitta Elín Hassel

Lestur: Sólveig Guðmundsdóttir

Útgefandi: Bókabeitan

Þessu lýkur hér

Höfundur: Colleen Hoover

Þýðendur: Marta Hlín Magnadóttir, Birgitta Elín Hassel

Lestur: Þrúður Vilhjálmsdóttir

Útgefandi: Bókabeitan

Örlagarætur

Höfundur: Anne Thorogood

Þýðandi: Ingibjörg Eyþórsdóttir

Lestur: Berglind Björk Jónasdóttir, Svandís Dóra Einarsdóttir

Útgefandi: Storytel Original

Hljóðsería

Aha!

Höfundar: Sigyn Blöndal, Sævar Helgi Bragason

Lestur: Sigyn Blöndal, Sævar Helgi Bragason

Útgefandi: Storytel Original

Handritagildran: Bókaþjófurinn kjöldreginn

Höfundur: Friðgeir Einarsson

Lestur: Friðgeir Einarsson

Útgefandi: Storytel Original

Hundrað óhöpp Hemingways

Höfundur: Lilja Sigurðardóttir

Lestur: Birgitta Birgisdóttir, Kolbeinn Arnbjörnsson, Lilja Sigurðardóttir, Lára Sveinsdóttir, Sigríður Láretta Jónsdóttir, Örn Árnason, Þuríður Blær Jóhannsdóttir

Útgefandi: Storytel Original

Skerið

Höfundar: Ragnar Egilsson, Áslaug Torfadóttir

Lestur: Haraldur Ari Stefánsson, Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson, Svandís Dóra Einarsdóttir

Útgefandi: Storytel Original

Sögustund með Afa

Höfundur: Örn Árnason

Lestur: Örn Árnason

Útgefandi: Storytel Original

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 3 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar