Bókakonfekt Forlagsins hefst í kvöld kl. 20 í Hannesarholti Grundarstíg 10. Kvöldið er annað af fjórum en á þeim koma höfundar höfundar Forlagsins og kynna bækur sínar fyrir gestum, spjalla um þær og lesa upp úr þeim.
Upplestrarkvöldin eru fyrir löngu orðin fastur liður í vetrardagskrá bókaáhugafólks og þar myndast notalegt og hátíðlegt andrúmsloft.
Bryddað verður upp á þeirri nýjung í ár að streyma beint frá Bókakonfektinu.
Eftirfarandi höfundar munu lesa upp:
Alexander Dan – Seiðstormur
Brynhildur Þórarinsdóttir – Smáralindar-móri
Einar Kárason – Heimsmeistari
Gunnar Theodór Eggertsson – Stjörnuljós
Hildur Knútsdóttir – Hrím
Lilja Sigurðardóttir – Dauðadjúp sprunga
Margrét Tryggvadóttir – Stolt og Íslensk myndlist
Nanna Rögnvaldardóttir – Valskan
Þórdís Helgadóttir – Armeló
Léttar veitingar verða í boði fyrir þá sem mæta á staðinn og bækur ofangreindra höfunda verða seldar á staðnum.
Næstu bókakonfekt fara fram næstu tvö miðvikudagskvöld. Þau verða einnig í Hannesarholti við Grundarstíg og hefjast klukkan 20.