fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fókus

T-skálarnar til vandræða í fluginu – „Farþegarnir voru svo ógeðslegir við mig“

Fókus
Miðvikudaginn 21. september 2022 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirsætan Leia Parker, sem gengur einnig undir nafninu Jodie Juggs, er með stór brjóst og hefur stolt lýst því yfir að þau séu af stærðinni 32T. Hún lenti í leiðinlegu atviki nýlega sem má rekja til þess hversu brjóstgóð hún er.

Leia er 26 ára og bókaði sér flug á almennu farrými í flugi frá Las Vegas til London, þar sem ekkert annað sæti var í boði. Þegar hún fékk sér sæti uppgötvaði hún þó að plássið var helst til lítið. „Það að sætin séu lítil er ekki gott fyrir brjóstin mín – ég átti erfitt með að vera ekki fyrir öðrum farþegum,“ sagði hún í viðtali við NeedtoKnow.online í dag.

En frekar en að sýna henni tillit ákváðu aðrir farþegar að bregðast ókvæða við barmi hennar og kvörtuðu til starfsmanna í fluginu.

„Farþegarnir voru svo ógeðslegir við mig,“ sagði Leia. „Einn kvenkyns farþegi sagði við flugfreyjuna að hún vildi „þessa stelpu og heimsku tútturnar hennar burt“ Hún hélt því fram að ég væri alltaf að nudda mér upp við kærasta hennar, en það var bara ekki nóg pláss.“

Leia segir að sumir farþegar hafi einnig reynt að heimta að sæti þeirra yrðu uppfærð á fyrsta farrými til að bæta þeim það upp að hafa þurft að vera í kremju út af stóru brjóstunum.

 

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Leia Parker (@jodiejuggs)

Leia segir að flugliðar hafi staðið með hinum farþegunum og að þeir hafi verið mjög andstyggilegir við hana og talað til hennar með niðrandi hætti.

Á endanum þurfti Leia að færa sig úr sætinu sem hún hafði bókað og sitja aftast í vélinni á svæðinu þar sem flugliðar athafna sig því það var ekkert annað pláss laust.

„Þau höfðu engin önnur sæti svo ég þurfti að eyða mest öllu fluginu í sætinu sem flugliðarnir sitja í við brottför og lendingu. Það var mjög særandi. Hinir voru ekki svona góðir. Þau sögðu fyrst „þú þarft að sitja öðruvísi til að vera ekki fyrir öðrum.“

Hún segir að ein flugfreyja hafi þó komið vel fram og boðið henni kodda. Leia segist hafa kvartað til flugfélagsins, sem hún nefnir ekki á nafn, út af þessari reynslu en hefur ekki fengið afsökunarbeiðni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“
Pressan
Fyrir 2 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín
Fókus
Fyrir 5 dögum

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla