„Ágúst Halldórsson er hænsnabóndinn í Vestmannaeyjum með stóru H-i. Hann er með fjórar hænur í flottum hænsnakofa sem hann byggði og góðu útisvæði fyrir hænurnar,“ sagði fréttamaðurinn Magnús Hlynur Hreiðarsson í innslagi um Ágúst sem sýnt var í kvöldfréttum Stöðvar 2 þann 19. ágúst í fyrra. Í innslaginu mátti sjá viðtal sem Magnús tók við Ágúst sem vakti mikla athygli í fyrra enda gott dæmi um einstakt lag Magnúsar Hlyns á að finna fyndnar og skemmtilegar fréttir úr samtímanum.
Ágúst rifjar fréttina upp í myndbandi sem hann birti á TikTok-síðu sinni í dag en þar viðurkennir hann að hafa logið í samtalinu við Magnús Hlyn.
Í fréttinni kom fram að hænur Ágústar eru nefndar eftir „kraftakonum frá Vestmannaeyjum“ – Páley, Guðbjörg Matt, Íris og Jakobína. Í viðtalinu sagði Ágúst að hænurnar hagi sér eins og nöfnur sínar í pólitíkinni.
„Þetta er svipað eins og í pólitíkinni. Ég sá að Páley og Guðbjörg Matt vildu ekki hafa Írisi fyrst en núna eru þær byrjaðar að vera saman aftur og ég sé að Jakobína er aðeins komin út úr hópnum. Hvort þetta sé eitthvað í sambandi við komandi kosningar, maður veit ekki hvað er í gangi,“ sagði Ágúst en á TikTok segir hann að þetta hafi verið fyrsta lygin hans í viðtalinu.
Lygi númer tvö hjá Ágústi kom þegar Magnús spurði hvort hann væri búinn að suða lengi um að fá hænur. „Já, það var ekki fyrr en konan mín, við eigum þrjú börn saman, hún vildi láta taka mig úr sambandi, þá fékk ég það í gegn, ef ég myndi láta taka mig úr sambandi fengi ég hænur í garðinn. Þannig að nú er ég með hænur og geldur,“ sagði Ágúst í viðtalinu og hló.
Í myndbandinu sem Ágúst birti á TikTok sýnir hann viðbrögð eiginkonu sinnar við viðtalinu en ljóst er að lygar eiginmannsins komu henni á óvart. „Hvað er að þér?!“ spurði hún til dæmis þegar Ágúst sagðist vera geldur í viðtalinu.
Þá hefur myndbandið vakið töluverða lukku á TikTok en í athugasemdunum má sjá að fólk hefur gaman að ósannindunum. „Þetta er einfaldlega það besta sem ég hef séð,“ segir til að mynda einn netverji. „Þetta er ekkert eðlilega fyndið,“ segir annar. „Hahahaha meistari!!“ segir svo í enn annarri athugasemd.
@agusthallAlltaf að muna að ljúga pínu ef þið farið í viðtöl.