fbpx
Laugardagur 23.maí 2026
Fókus

Falin myndavél: Sigríður hrekkir samstarfskonu sína á RÚV – „Innilega móðguð og sár“

Fókus
Föstudaginn 2. desember 2022 16:30

Sigríður hrekkti Sunnu og náði því á myndband.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Í ljósi hins sanna jólaanda birti ég hér smá myndskeið sem gleður ykkur vonandi í skammdeginu,“ segir Sigríður Dögg Auðunsdóttir, stjórnandi Kastljóss og formaður Blaðamannafélags Íslands, í færslu sem hún birtir á Facebook-síðu sinni í dag.

Um er að ræða myndband sem sýnir hvernig Sunna Valgerðardóttir, fréttakonu og þáttastjórnanda Þetta helst á Rás 1, bregst við hrekk sem Sigríður skipulagði. „Þetta er hún Sunna Valgerðardóttir kær vinkona mín sem bregst svona innilega móðguð og sár yfir „gjöf“ sem hún fékk frá „leynivini“ á fréttastofunni fyrir ekki svo löngu,“ segir Sigríður um viðbrögð samstarfskonu sinnar.

Þá útskýrir Sigríður forsögu hrekksins: „Hún hafði sem sagt ekki fengið neina gjöf (tímafrestur gjafa var n.b. ekki liðinn) og var mjög upptekin af því þannig að ég „gaf“ henni í nafni leynivinar (sem ég var ekki) sömu (óvinsælu) jólagjöfina og RÚV hafði gefið starfsmönnum árið áður: risotto og vöfflumix.“

Sigríður vekur svo athygli á því að Sunna vissi ekki að verið var að taka upp viðbrögðin hennar, því var um að ræða svokallaða falda myndavél.

„Ekki missa af viðbrögðum hennar í lokin. Priceless. Gjörið þið svo vel og gleðilega aðventu. Horfið með hljóðið á!“ segir Sigríður svo en myndbandið má sjá í færslunni hér fyrir neðan.

Í athugasemd við færslu Sigríðar segir Sunna að hún skammist sín örlítið fyrir vanþakklætið. „En mér féllust bara hendur. Ég tek flestum gjöfum fagnandi þessi jólin,“ segir hún og útskýrir svo nánar hvað var í pakkanum: „Og þetta var byggottó, ekki rísottó. Og gróft hafravöfflumix, ekki bara vöfflumix.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Billy Joel fordæmir væntanlega kvikmynd um hann sjálfan sem er gerð í hans óþökk

Billy Joel fordæmir væntanlega kvikmynd um hann sjálfan sem er gerð í hans óþökk
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fregnir af andláti Karls Bretakonungs stórlega ýktar

Fregnir af andláti Karls Bretakonungs stórlega ýktar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Bonnie Blue er ólétt – Í alvöru í þetta skiptið

Bonnie Blue er ólétt – Í alvöru í þetta skiptið
Fókus
Fyrir 4 dögum

Páfi gerði 6-7 og börnin trylltust úr gleði

Páfi gerði 6-7 og börnin trylltust úr gleði
Fókus
Fyrir 5 dögum

Biður íslensku þjóðina afsökunar á neyðarlegum mistökum – „Stundum sagt að allt geti gerst í beinni útsendingu“

Biður íslensku þjóðina afsökunar á neyðarlegum mistökum – „Stundum sagt að allt geti gerst í beinni útsendingu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sydney Sweeney setti allt á hliðina í gærkvöldi með þessu atriði í Euphoria

Sydney Sweeney setti allt á hliðina í gærkvöldi með þessu atriði í Euphoria
Fókus
Fyrir 1 viku

Jennifer sér eftir klippingunni sem tryllti aðdáendur

Jennifer sér eftir klippingunni sem tryllti aðdáendur
Fókus
Fyrir 1 viku

Rósa fékk áfall þegar hún las utan á umbúðirnar – „Mér leið í tvo daga eins og rúta hafi keyrt á mig“

Rósa fékk áfall þegar hún las utan á umbúðirnar – „Mér leið í tvo daga eins og rúta hafi keyrt á mig“