fbpx
Fimmtudagur 03.júlí 2025
Fókus

Sjáðu myndina: Vilhjálmur kemur á óvart á tískusíðunum -„Fer alltaf sínar eigin leiðir“

Jón Þór Stefánsson
Föstudaginn 11. júní 2021 16:30

Samsett mynd

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vilhjálmur Bjarnason, fyrrverandi þingmaður, kom mörgum á óvart þegar hann birtist óvænt á tískusíðum Fréttablaðsins. Þessa stundina stendur Vilhjálmur í prófkjörsbaráttu en hann sækist eftir öðru eða þriðja sæti hjá Sjálfstæðisflokknum í Suðvesturkjördæmi. Þess vegna keypti Vilhjálmur auglýsingu í Fréttablaðinu sem kom skemmtilega út líkt og sjá má:

Tískusíður Fréttablaðsins

Opnan með Vilhjálmi hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum, en margir virðast hafa séð Vilhjálm sem fyrirsætu. Hann er við hlið tónlistarkonunnar Rihönnu, sem vermir aðrar myndir opnunnar, undir fyrirsögninni „Fer alltaf sínar eigin leiðir“, en mörgum finnst það einnig eiga vel um Vilhjálm.

Vilhjálmur hefur sjálfur deilt opnunni á Facebook-síðu sinni. Þar þakkar hann Fréttablaðinu fyrir að setja sig á tískusíðurnar, enda eigi það mjög vel við. Auk þess birtir hann ljóð eftir fyrrverandi þingmanninn Hjálmar Jónsson:

Athyglina ekki missti,

allt er Villa í hag.

Fallegur er framboðslisti

Fréttablaðsins í dag.

Fleiri hafa bent á þessa skemmtilegu síðu, þar á meðal er rithöfundurinn Hallgrímur Helgason, sem segir tískusíðurnar hafa náð nýjum hæðum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Eva var stoppuð af lögreglunni og kom í Dagbók lögreglunnar – „Æ Eva hættu að ljúga að opinberum starfsmanni“

Eva var stoppuð af lögreglunni og kom í Dagbók lögreglunnar – „Æ Eva hættu að ljúga að opinberum starfsmanni“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Rihanna stórglæsileg á bláa dreglinum við heimsfrumsýningu kvikmyndarinnar Smurfs 

Rihanna stórglæsileg á bláa dreglinum við heimsfrumsýningu kvikmyndarinnar Smurfs 
Fókus
Fyrir 4 dögum

Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og Miss Photogenic 2025

Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og Miss Photogenic 2025
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þetta eru bestu bíómyndir aldarinnar samkvæmt sérfræðingum

Þetta eru bestu bíómyndir aldarinnar samkvæmt sérfræðingum
Fókus
Fyrir 5 dögum

Myndirnar sem Katy Perry vill ekki sjá: Orlando Bloom með dökkhærðri þokkadís

Myndirnar sem Katy Perry vill ekki sjá: Orlando Bloom með dökkhærðri þokkadís
Fókus
Fyrir 5 dögum

Yngri konan vill djamma og stunda kynlíf öll kvöld – „Hvað á ég að gera?“

Yngri konan vill djamma og stunda kynlíf öll kvöld – „Hvað á ég að gera?“