fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Stjörnurnar og heimsmetin

Erla Dóra Magnúsdóttir
Sunnudaginn 14. mars 2021 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sumar stjörnur eru svo magnaðar að það er met. Þar að auki hafa margar þeirra slegið met og unnið sér inn stað í Heimsmetabók Guinness, þó svo að metin hafi sum síðar verið slegin af öðrum.

ARIANA GRANDE

Söngkonan vinsæla Ariana Grande hefur slegið tuttugu heimsmet. Árið 2019 sló hún metið sem konan með flesta fylgjendur á Instagram, en hún er með yfir 220 milljónir fylgjenda. Hún á líka metið fyrir lagið sem oftast hefur verið streymt á einni viku og lagið sem hefur oftast verið streymt á tónlistarveitunni Spotify á einu ári.

JUSTIN BIEBER

Justin Bieber á heimsmet í flestum áhorfum á YouTube og líka fyrir að vera yngsti söngvarinn til að ná að koma fimm plötum í fyrsta sæti bandaríska vinsældalistans.

Bieber átti líka öllu leiðinlegra heimsmet, en hann átti metið í hataðasta myndbandinu á Internetinu, fyrir lagið Baby. En það met hefur nú verið slegið af myndbandinu YouTube Rewind 2018.

BETTY WHITE

Hin viðkunnanlega leikkona Betty White er elskuð af öllum og það ætti ekki að koma mörgum á óvart að Betty er skráð í heimsmetabókina fyrir að vera leikkonan með lengsta ferilinn í sjónvarpi, en ferill hennar hófst árið 1939 sem þýðir að Betty White hefur leikið í yfir 80 ár!

Mynd/Getty

SNOOP DOGG

Snoop Dogg á heimsmetið í því að blanda stærsta Paradísar-kokteilinn. Kokteilinn blandaði hann árið 2018 og innihélt hann 315 lítra af gini, 156 lítra af líkjör og 106 lítra af appelsínusafa. Í einu vinsælasta lagi sínu rappar Snoop um gin og djús og nú státar hann af því að eiga stærstu blönduna sem gerð hefur verið í heiminum.

Mynd/Getty

PHARRELL WILLIAMS

Tónlistarmyndband Pharrells William við vinsæla lagið Happy sló heimsmet, en í fullri lengd er það 24 klukkustundir. Þetta met var svo slegið aftur árið 2020 af hljómsveitinni 21 Pilots sem gerði tónlistarmyndband sem var 177 dagar, 16 klukkustundir, tíu mínútur og 25 sekúndur að lengd.

Pharrell Williams

BEYONCÉ

Beyoncé á heimsmet í því að vera tilnefnd til Grammyverðlaunanna en hún hefur verið tilnefnd 79 sinnum, engin önnur söngkona hefur náð þeim árangri. Hún sló einnig met árið 2012 þegar hún var fyrsta söngkonan til að hljóta sex Grammy-verðlaun á sömu hátíðinni en því meti deilir hún í dag með söngkonunni bresku Adele.

JACKIE CHAN

Leikarinn, framleiðandinn og áhættuleikarinn Jackie Chan á heimsmet í því að framkvæma flest áhættuatriði allra núlifandi leikara. Þetta met sló hann árið 2012 og hefur haldið því síðan.

DWAYNE JOHNSON

Harðnaglinn og hasarleikarinn Dwayne Johnson sló heimsmet í janúar 2017 þegar hann tók þátt í að gera rúmlega 250 kílóa sjö laga ídýfu. Því miður var þetta met svo slegið út í janúar 2020 þegar rúmlega 500 kílóa ídýfa leit dagsins ljós. Dwayne sló einnig met í sjálfsmyndum þegar hann tók 105 sjálfsmyndir á aðeins þremur mínútum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“