fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Sakamál – Hver drap hina krabbameinsveiku Betsy Faria?

Erla Dóra Magnúsdóttir
Laugardaginn 13. mars 2021 21:00

Betsy og Russ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Betsy Faria var veik. Brjóstakrabbamein sem hún hélt sig hafa haft betur gegn hafði dreift sér og var komið í lifrina. Útlitið var ekki gott. Betsy átti að líkindum ekki langt eftir, en engu að síður barðist hún hvað hún gat og mætti samviskusamlega í lyfjameðferð.

Fimmtíu og fimm stungur

Þann 28. desember 2011 barst Neyðarlínunni símtal frá eiginmanni Betsyar, Russ. Hann greindi í örvinglan frá því að eiginkona hans hefði framið sjálfsvíg. Um leið og viðbragðsaðila bar að garði gerðu þeir sér ljóst að hér var ekki um sjálfsvíg að ræða. Betsy lá í blóði sínu á stofugólfinu og út úr hálsi hennar stóð eldhúshnífur. Hún hafði verið stungin fimmtíu og fimm sinnum víðs vegar um líkamann, stundum svo djúpt að hnífsblaðið nam við bein.

Grunur beindist fljótlega að eiginmanninum, Russ. Blóð hafði fundist á inniskóm Russ sem voru faldir inni í fataskáp, auk þess greindi vinkona Betsyar, Pam Hupp, lögreglu frá því að erfiðleikar hefðu verið í hjónabandinu og hefði Betsy verið hrædd við eiginmann sinn. Við fyrstu sýn virtist um fjölskylduharmleik að ræða – heimilisofbeldi sem gekk of langt. En ýmislegt kom þó ekki heim og saman.

Pam Hupp

Líftryggingunni breytt

Lögmaður Russ átti bágt með að skilja hvers vegna lögregla hafði ekki skoðað vinkonu Betsyar betur, því Pam Hupp virtist hafa ýmislegt óhreint í pokahorninu. Pam og Betsy kynntust þegar þær unnu saman á árum áður en höfðu verið í litlu sambandi áður en Betsy greindist með krabbameinið. Þá hafði Pam orðið óvenjulega mikil stuðningsmanneskja og varla vikið frá Betsy nema rétt yfir blánóttina. Hún fylgdi Betsy í lyfjameðferðir og var í stöðugu sambandi við hana.

Nokkrum dögum áður en Betsy dó hafði hún gert breytingu á líftryggingu sinni og gert Pam að viðtakanda tryggingarinnar. Talið er að Betsy hafi óttast að unglingsdætur hennar tvær og eiginmaður kynnu illa með peninga að fara og myndu eyða fjárhæðinni allri á einu bretti. Pam átti að tryggja að peningarnir myndu duga fjölskyldunni í lengri tíma.

Pam var einnig síðasta manneskjan sem sá Betsy á lífi. Hún hafði ekið Betsy heim úr lyfjameðferð og hjálpað henni inn í húsið. Hún hafði heldur enga fjarvistarsönnun og neitaði að gangast undir lygapróf.

Vildu bara eiginmanninn

Lögregla hafði engan áhuga á Pam, bara Russ. Engu að síður þurftu ákæruvald og lögregla að útskýra það að Russ væri með fjarvistarsönnun, en hann hafði verið á spilakvöldi hjá vinum og á heimleiðinni komið við í sjoppu og því ekki haft tíma til að myrða konu sína. Russ neitaði líka sök allan tímann á meðan framburður Pam Hupp breyttist í hvert sinn sem rætt var við hana.

Því fór ákæruvaldið þá leið að mála stórfurðulega sviðsmynd af málinu. Samkvæmt þeirri atburðarás væru Russ og vinir hans með hlutverkaleiki á heilanum og hefðu þessar fantasíur ágerst, þar til þeir gripu til þess að myrða Betsy í sameiningu. Því væru vinirnir að ljúga til um fjarvistarsönnun Russ og hefðu sjálfir farið í sjoppuna með kort hans til að styðja við fjarvistarsönnunina. Russ hefði svo farið heim, notið ásta með konu sinni, myrt hana svo, síðan klætt líkið og sjálfan sig, farið í inniskó og dýft þeim í blóðpoll, síðan sett inniskóna inn í skáp og svo hringt í Neyðarlínuna.

Hirti peningana

Enginn vinanna fjögurra var þó sóttur til saka fyrir neitt. Lögmanni Russ var þó bannað að haga málflutningi sínum með þeim hætti að grun yrði varpað á Pam. Meðal þeirra gagna voru símagögn sem sýndu fram á að Pam væri að ljúga – hún hefði ekki bara skutlað Betsy heim heldur dvalið á heimilinu í hálftíma þetta kvöld. Síðan voru það peningarnir. Pam hafði reyndar sett meirihluta tryggingarinnar í sjóð fyrir dætur Betsyar á meðan málið var rekið fyrir dómi, svo allt leit út fyrir að vera með felldu varðandi þá tilhögun.

Hins vegar var sjóðurinn afturkallanlegur – enda beið Pam ekki lengi eftir að málinu lauk með að tæma sjóðinn að nýju – fjölskylda Betsyar hefur aldrei fengið að sjá krónu af líftryggingunni.

Móðir Pam deyr

Undir rekstri málsins lést  móðir Pam einnig. Sú hafði glímt við Alzheimer en engu að síður fallið til bana af þriðju hæð með áttfaldan skammt af sljóvgandi lyfjum í blóðinu. Pam dóttir hennar var síðust til að sjá hana á lífi og var jafnframt einn erfingja sem og viðtakenda líftryggingar móður sinnar.

Russ var dæmdur í þrjátíu ára fangelsi. Eftir dóminn birti rannsóknarblaðamaður ítarlega frétt um málið þar sem fjallað var um hlut Pam að málinu, reikulan framburð hennar, líftrygginguna og allt. Eins var sýnt fram á annmarka við rekstur málsins hjá ákæruvaldinu, en yfirrannsóknarlögreglumaðurinn og saksóknarinn áttu í ástarsambandi og svo virtist sem saksóknari hefði nýtt sér það samband til að fá lögreglu til að einbeita sér aðeins að Russ.

Blóðugu inniskórnir

Málinu var áfrýjað og þá mátti lögmaður Russ leggja fram sannanir sínar.

Blóðugu inniskónum hans Russ hafði greinilega verið dýft í blóð, en ekki stigið í það. Það væri mjög undarlegt. Hupp hafði sífellt breytt framburði sínum, neitað að gangast undir lygapróf og haldið því meðal annars fram að hún og Betsy ættu í kynferðislegu sambandi. Pam var síðust til að sjá Betsy á lífi, og svo var það líftryggingin. Russ var sýknaður og síðan þá hefur dómaranum í upprunalega málinu, sem og saksóknaranum báðum verið vikið úr starfi. En Pam var ekki sótt til saka og gekk því laus.

Myrti fatlaðan mann

Þann 6. ágúst árið 2016 hringdi Pam í Neyðarlínuna og óskaði eftir aðstoð. Þegar lögreglu bar að garði kom hún að 33 ára karlmanni, Louis Royse Gumpenberger, látnum á heimilli Pam. Hann hafði verið skotinn fimm sinnum. Pam sagði að Louis hefði reynt að ræna sig og neyða sig til að afhenda honum peningana úr líftryggingu Betsyar. Hún hefði skotið hann í sjálfsvörn.

Fundu lögreglumenn miða í vasa Louis sem virtist benda til að Russ hefði fyrirskipað morð á Pam. Lögregla tók þetta ekki trúanlegt. Louis þessi var fatlaður eftir bílslys, átti erfitt með gang og hafði skerta greind.

Lögreglu þótti líklegra að Pam hefði platað hann heim til sín og síðan sett atburðarásina á svið til að láta Russ líta út fyrir að vera morðingja.

Pam var því loksins handtekin. Í haldi fór hún á salernið og reyndi að fyrirfara sér með kúlupenna. En lögreglumönnum þótti það benda til þess að hún hefði sitthvað óhreint á samviskunni.

Hún lifði þó af og var ákærð fyrir morð þar sem farið var fram á dauðarefsingu. Hupp ákvað að reyna að bjarga lífi sínu og gerði því dómsátt þar sem hún gekkst við broti sínu og slapp í staðinn við dauðarefsingu. Hún er nú í lífstíðarfangelsi og á ekki möguleika á reynslulausn.

Málið þykir hið ævintýralegasta og væri það efni í heila bók að greina frá hverju einasta smáatriði. Það verður þó reynt fljótlega því í bígerð eru sjónvarpsþættir sem byggja á sögu Pam Hupp og mun stórleikkonan Rénée Zellweger fara með aðalhlutverkið. Þættirnir kallast „The thing about Pam“ en eru framleiddir af sjónvarpsstöðinni NBC. Ekki er komið á hreint hvenær þættirnir hefja göngu sína en ljóst er að söguþráðurinn verður æsispennandi og lyginni líkastur.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Í gær

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna
Fókus
Fyrir 2 dögum

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi