fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Sandra segir rangt að heimgreiðslur séu betri fyrir börn – „Engin haldbær vísindi“

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 28. apríl 2026 16:28

Sandra bendir á að rannsóknir sýni ekki fram á að tengslamyndun snúist ekki um að vera heima sem lengst.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sandra Hlín Guðmundsdóttir, frambjóðandi Viðreisnar í Reykjavík, segir það rangt að halda því fram að heimgreiðslur séu betri fyrir börn. Engin haldbær vísindi séu á bak við þær fullyrðingar og þær veiki stöðu kvenna til lengri tíma.

„Tengslamyndun snýst ekki um að vera heima sem lengst. Tengslamyndun snýst um gæði tengsla,“ segir Sandra, sem starfa sem náms- og starfsráðgjafi í Borgarholtsskóla og skipar 6. sæti á lista Viðreisnar.

Vísar hún til rannsókna sálfræðingsins John Bowlby og nýrri rannsókna sem séu allar á sama veg. „Börn þurfa hlýju, stöðugleika og áreiðanlega umönnun. Það er hægt að mæta þeim þörfum bæði heima og með góðri dagvistun,“ segir Sandra.

Snýst ekki aðeins um börn

Nefnir hún einnig að norrænar rannsóknir og gögn frá OECD sýni að vönduð dagvistun styðji þroska barna og geti skipt höfuðmáli fyrir þau sem standa höllum fæti. „Það eru engin haldbær vísindi sem sýna að börn hafi almennt betra af því að eitt foreldri sé lengur heima á heimgreiðslum,“ segir hún. En auknar heimgreiðslur er stefna sem Miðflokkurinn beitir sér nú fyrir sveitarstjórnarkosningarnar.

Sjá einnig:

Sandra ekki sátt:„Við eigum að velja uppbyggingu fram yfir niðurskurð“

„En þessi umræða snýst ekki bara um börn, hún snýst líka um skilaboð til ungra kvenna,“ segir Sandra. „Þegar því haldið er fram að ungar konur séu óhamingjusamar og það tengt hugmyndum um „náttúruleg“ hlutverk þeirra, þá er verið að færa umræðuna í ákveðna átt. Það er ekki hlutlaus greining, það er yfirklór sem notar raunverulegt vandamál til að réttlæta gamlar hugmyndir um hlutverk kvenna,“ segir hún og vísar þar með í nýleg ummæli Jóns Péturs Zimsen, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Ummæli sem hann hefur síðan beðist afsökunar á.

Afturför en ekki valfrelsi

Segir Sandra að heimgreiðslur dragi úr atvinnuþátttöku aðallega hjá konum, auki tekjumun og veiki stöðu kvenna til lengri tíma, festi gamaldags hugmyndir um hlutverk kynjanna í sessi, dragi úr þrýstingi að byggja upp góða dagvistun fyrir börn og auki félagslega einangrun barna og foreldra.

„Á sama tíma vitum við að við eigum framúrskarandi fagfólk í leikskólum en allt of margir treysta sér ekki til að starfa þar vegna starfsaðstæðna og starfsumhverfis. Ef við viljum gera betur fyrir börn, þá er lausnin ekki að greiða fólki fyrir að vera heima, heldur að fjárfesta í kerfinu, bæta kjör og aðstæður og styrkja faglegt starf í leikskólum,“ segir hún að lokum. „Ef lausnin sem þú leggur til ýtir konum út af vinnumarkaði, eykur tekjumun og dregur úr uppbyggingu leikskólakerfisins þá er það ekki „valfrelsi“. Það er afturför.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Lögregla rannsakar stórfellda líkamsárás í Kópavogi

Lögregla rannsakar stórfellda líkamsárás í Kópavogi
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Ákærður fyrir tilraun til forsetamorðs en hvergi banginn – „Ég er með meistaragráðu“

Ákærður fyrir tilraun til forsetamorðs en hvergi banginn – „Ég er með meistaragráðu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Þess vegna eru heimgreiðslur snákaolía“

„Þess vegna eru heimgreiðslur snákaolía“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

24 ára Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys í Danmörku

24 ára Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys í Danmörku