fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Sakamál – Hundelti kattamorðinginn

Erla Dóra Magnúsdóttir
Sunnudaginn 28. febrúar 2021 21:30

Lin Jun t.v og Luka Magnoetta t.h.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það vakti verulegan óhug meðal netverja árið 2010 þegar þrjú myndskeið birtust sem sýndu hrottaleg dýraníð. Eitt myndskeiðið kallaðist 1 maður 2 kettlingar og í því mátti sjá mann koma tveimur litlum kettlingum fyrir í loftþéttum poka þar sem kettlingarnir köfnuðu. Síðan tók maðurinn hræin og nuddaði kynfærum sínum utan í þau. Skömmu síðar birtust tvö myndskeið til viðbótar sem sýndu áþekkt athæfi sem ekki er ástæða til að lýsa með nánari hætti.

Hópur netverja sem kallaði sig The Animal Beta Project ákváðu að finna út hver stæði að baki myndskeiðunum og afhjúpa hann.

„Þessi maður gæti snúið sér að því að myrða manneskjur einn daginn,“ skrifaði hópurinn á Facebook árið 2011. Hópurinn hefur líklega ekki gert sér í hugarlund þá hversu rétt hann hafði fyrir sér.

Luka var ekki mikll dýravinur

Allt fyrir frægðina

Eric Clinton Krik Newman er fæddur í Kanada árið 1982. Móðir hans var haldin áráttuog þráhyggjuröskun og allt varð að vera hreint í kringum hana. Eric greindi síðar frá því að móðir hans læsti börn sín reglulega úti í kuldanum og að eitt sinn hafi hún sett gæludýr barnanna, kanínur, út í kuldann svo þau frysu í hel. Faðir hans var greindur með geðklofa.

Eric fór um tvítugt að reyna fyrir sér í klámiðnaðinum og starfaði einnig sem fatafella og fylgisveinn. Hann var mjög upptekinn af útlitinu og undirgekkst fjölda lýtaaðgerða. Árið 2005 var Eric sakfelldur fyrir fjársvik og eftir það ákvað hann að taka upp nýtt nafn, Luka Rocco Magnotta, enda hefur honum líklega þótt það nafn vænlegra til vinsælda í heimi fullorðinsmyndbanda.

Luka var heillaður af netinu og hafði skapað sér þar marga mismunandi persónur á samfélagsmiðlum sem og spjallrásum. Þessar fals-persónur nýtti hann svo í þeim tilgangi að afla sjálfum sér frægðar. Meðal annars kom hann þeim orðróm af stað að hann ætti í ástarsambandi við morðingjann Körlu Homolka sem situr í fangelsi fyrir að hafa nauðgað og myrt ungar stúlkur ásamt fyrrum ástmanni sínum.

En þetta dugði ekki Luka. Hann vildi frægð, sama hvað hún kostaði. Fyrst hann gat ekki vakið aðdáun með útliti sínu og líkama þá skyldi hann vekja úlfúð. Því hóf hann að birta ógeðfelld dýraníðsmyndbönd í skjóli nafnleyndar á netinu.

Var tilbúinn að gera allt fyrir frægðina

Ómögulegt að hætta

„Þú getur birt klám, ofbeldi, myndband af einhverjum sem er hrint niður stiga, vanvirðingu á trúarlíkneskjum og öllum er sama. En í þessum myrku undirkimum netsins er óskrifuð regla. Regla númer núll er „ekki fokka í köttum,“ sagði Deanna Thompson, ein þeirra sem rannsökuðu dýraníðsmyndböndin og röktu þau til Luka.

Dýravinirnir og aktívistarnir á netinu tengdu Luka við dýraníðið og ekki leið á löngu áður en blaðamaður The Sun setti sig í samband við Luka og spurði út í myndböndin. Svarið sem Luka gaf honum var ógnvekjandi.

„Þið munið heyra meira frá mér í náinni framtíð. Næst verða þó fórnarlömbin ekki lítil dýr. Ég skal senda þér nýja myndbandið sem ég er að vinna að. Að drepa er ekki eins og að reykja, þú skilur. Þú getur hætt að reykja, en eftir að þú hefur drepið og fundið bragðið af blóði þá er ómögulegt að hætta.”

Fjöldi aðila innan aktívistahópsins sem rannsakaði Luka hafði samband við lögreglu. Hins vegar hafði lögregla ekki ýkja mikinn áhuga á að rannsaka nokkur kattamorð. „Þetta eru bara kettir. Það er ekkert sem við getum gert í þessu. Við höfum ekki tíma fyrir þetta,“ sagði lögregla við einn dýravinanna.

1 geðsjúklingur, 1 ísnál

Þann 25. maí 2012 birtist ellefu mínútna myndband á netinu sem bar nafnið 1 geðsjúklingur, 1 ísnál. Í myndbandinu sást nakinn karlmaður bundinn við rúmgafl og ítrekað stunginn með ísnál og eldhúshníf. Síðan var líkið aflimað og líkamsleifunum sýnd vanvirðandi kynferðisleg háttsemi.

Fjórum dögum eftir að morðmyndbandið birtist, barst pakki í höfuðstöðvar Íhaldsflokksins í Kanada. Pakkinn var blóðugur, illa lyktandi og var merktur með hjarta. Í pakkanum var aflimaður vinstri fótur ásamt bréfi þar sem skrifað var að sex líkamshlutum hefði verið komið í dreifingu og að morðinginn ætlaði sér að myrða aftur.

Álíka pakkning var send Frjálslynda flokknum en sú sending var stöðvuð á pósthúsi. Þar fannst aflimaður vinstri handleggur.

Húsvörður í fjölbýlishúsi varð var við grunsamlega ferðatösku sem hafði verið skilin eftir í ruslahrúgu fyrir aftan húsið. Í töskunni var rotnandi búkur. Lögregla kembdi svæðið í leit að frekari vísbendingum og fann blóðugan fatnað, eggvopn og pappíra þar sem nafnið Luka kom fyrir.

Lögregla hélt þá að heimili Luka, en hann var þá á bak og burt. Blóðug ummerki í íbúðinni gáfu þó til kynna að þar hefði eitthvað saknæmt átt sér stað.

Líkamsleifarnar reyndust tilheyra skiptinemanum Jun Lin sem hafði verið saknað í um viku. Þann 5. júní bárust líkamshlutar til tveggja skóla í Kanada, hægri fótur og hægri hönd. Þann 1. júlí fannst svo höfuðið við lítið stöðuvatn í almenningsgarði.

Morðvopnið var ísnál líkt og í kvikmyndinni Basic Instinct

Slátrarinn frá Montreal

Þá hófst eltingarleikurinn. Lögreglu varð fljótlega ljóst að Luka hefði flúið Kanada og væri erlendis í felum. Hann var því eftirlýstur af Interpol og ekki stóð á ábendingunum. Hann var til umfjöllunar í flestum stærri miðlum heims. Í Frakklandi var hann kallaður „Slátrarinn frá Montreal“ og í Þýskalandi var hann kallaður „Klámmorðinginn“. Luka var orðinn frægur. Langþráður draumur hans hafði loksins ræst.

Það er því kannski ekki að undra að þegar lögregla hafði loks hendur í hári hans þá var það á netkaffihúsi í Berlín þar sem Luka sat og las fréttir um sjálfan sig.

Luka fékk því að lokum það sem hann dreymdi alltaf um. Heimildarmyndin „Don‘t Fuck With Cats,“ kom út á Netflix árið 2019 og vakti mikla athygli og móðir Luka hefur skrifað bók um hvernig það er að vera móðir morðingja. Luka hefur einnig verið duglegur að minna á sig úr fangelsinu þar sem hann situr nú í lífstíðarfangelsi, en hann svarar gjarnan fyrirspurnum fjölmiðla, sendir á fjölmiðla erindi að fyrra bragði og svo varð það frægt þegar hann gifti sig í fangelsinu öðrum fanga, Anthony Jolin, sem einnig situr inni fyrir morð.

Luka hefur þó ekki gengist við brotum sínum og heldur því fram að maður að nafni Manny hafi neytt hann til að fremja þessa svívirðilegu glæpi.

Þá kom aftur til kasta netverja sem voru fljótir að komst að því að Manny var tilbúningur og nafnið stolið úr kvikmyndinni Basic Instinct, en í þeirri mynd er maður myrtur með ísnál.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki