

Elín Hirst er komin til starfa hjá Torgi ehf. sem rekur Fréttablaðið, frettabladid.is, dv.is og Hringbraut. Elín hefur starfað við fjölmiðla um áratuga skeið og var um hríð þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Elín er fjölmiðlafræðingur og sagnfræðingur að mennt og hóf feril sinn árið 1984 og hefur m.a. stýrt fréttastofum Stöðvar 2 og Bylgjunnar og fréttastofu Sjónvarpsins (RÚV) Undanfarin fjögur ár hefur hún unnið við framleiðslu sjónvarpsefnis hjá Sagafilm ehf.
,,Já þetta er mjög ánægjulegt skref að stíga á mínum starfsferli, ég hlakka til að nýta reynslu mína á þeim fjölbreyttu og öflugu fjölmiðlum sem við rekum hér. Það er líka frábært að fá tækifæri til að vinna aftur með mínum gamla starfsbróður, Sigmundi Erni Rúnarssyni aðalritstjóra Fréttablaðsins, en við störfuðum saman um árabil á Stöð 2,“segir Elín Hirst.
,Það verður spennandi að vinna að fjölbreyttum verkefnum hér á sviði blaða- og fréttamennsku, hvort sem það eru fréttaskrif í Fréttablaðið og á vefinn auk þess sem það verður gaman að rifja upp gamla sjónvarpstakta á Hringbraut,“ bætir hún við.