

Samkvæmt rannsókninni voru einstaklingar sem notuðu lyfin um 50 prósentum ólíklegri til að greinast með briskrabbamein á fimm ára tímabili en þeir sem ekki notuðu þau.
Rannsakendur greindu sjúkraskrár um 90 þúsund Bandaríkjamanna með sykursýki af tegund 2 og langvinna brisbólgu. Báðir þessir sjúkdómar eru þekktir áhættuþættir fyrir briskrabbamein, sem er eitt banvænasta krabbamein sem til er.
Sjá einnig: Dulin einkenni briskrabbameinsins sem banaði Alan Rickman
Í frétt Daily Mail er bent á að tíðni briskrabbameins hafi farið vaxandi á undanförnum áratugum, en krabbameinið dregur um þrjá af hverjum fjórum sjúklingum til dauða innan árs frá greiningu.
Sjúkdómurinn greinist oft seint, eða þegar meðferðarmöguleikar eru orðnir takmarkaðir.
Vísindamenn telja að möguleg verndandi áhrif GLP-1 lyfjanna kunni að stafa af því að þau draga úr bólgum í líkamanum og bæta blóðsykursstjórnun og efnaskipti.
„Langvinn brisbólga er stór áhættuþáttur fyrir briskrabbamein. Að sjá svo mikla fækkun krabbameinstilfella meðal fólks sem notar GLP-1 lyf er afar athyglisvert,“ sagði Rachna Shroff, sérfræðingur í krabbameinum í meltingarfærum við Krabbameinsmiðstöð Háskólans í Arizona, en tekið er fram að Rachna hafi ekki verið á meðal þeirra sem tóku þátt í rannsókninni.
Niðurstöðurnar eru sérstaklega athyglisverðar í ljósi þess að áður hafa verið uppi áhyggjur af því að GLP-1 lyf gætu aukið hættu á brisbólgu. Sú mögulega aukaverkun er nefnd í fylgiseðlum lyfjanna, þó nýlegar stórar rannsóknir hafi ekki fundið skýrar vísbendingar um aukna tíðni brisbólgu meðal notenda.
Aðrir vísindamenn telja þó að enn sé of snemmt að draga afdráttarlausar ályktanir. Rannsóknin sýni tengsl milli notkunar lyfjanna og minni tíðni briskrabbameins, en sanni ekki að lyfin sjálf séu orsök minni áhættu
Á sama tíma voru kynntar niðurstöður annarrar rannsóknar á ráðstefnunni sem benda til þess að GLP-1 lyf geti hægt á framgangi nokkurra annarra krabbameina, þar á meðal lungna-, lifrar-, brjósta- og ristilkrabbameins.