fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fókus

Katie Price í tómum vandræðum með að leysa eiginmanninn úr fangelsi: „Ég er ekki heimsk“

Fókus
Mánudaginn 8. júní 2026 20:00

Price elur nú manninn í Dubai. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breska raunveruleikastjarnan og áhrifavaldurinn Katie Price þarf að borga háa fjárhæð til að leysa nýja eiginmanninn sinn úr fangelsi í Dubai. Price kynntist athafnamanninum Lee Andrews í janúar síðastliðnum og giftist honum tveimur vikum síðar.

Þau voru svo á leiðinni um borð í flugvél til Bretlands til að mæta í viðtal í Good Morning Britain þegar Andrews var handtekinn. Price sagði á samfélagsmiðlum að hann hefði verið handtekinn fyrir njósnir en síðar kom í ljós að sakarefnin sneru að svindli og fjársvikum. Henni hafi verið sagt að greiða 6 þúsund pund til að leysa hann út á tryggingu en þegar á staðinn var komið kom í ljós að hún þyrfti að greiða 140 þúsund pund, eða um 23 milljónir króna.

Price var grunuð um að setja eitthvað af þessu á svið en því hafnaði hún í morgun þegar hún mætti einsömul í Good Morning Britain. „Þetta er alvöru, þetta er búið að vera lífið mitt síðustu vikur. Ég er sterk og brosi í gegnum þetta,“ sagði hún.

„Sumir eru ekki hrifnir af ákvörðununum sem ég tek en ég er ekki að lifa fyrir neinn annan. Ég veit að fólk kallar mig heimska, ég sé hvað er skrifað um mig og ég heyri það. Ég er ekki heimsk.“

Vandræðin bætast ofan á fleiri vandamál í lífi hennar en nýverið var greint frá því að Instagram-reikningi hennar var lokað þar sem hún flassaði brjóstunum og auglýsti CBD gúmmí.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Segir Ódysseif „erfiðustu mynd sem ég hef nokkurn tímann gert“

Segir Ódysseif „erfiðustu mynd sem ég hef nokkurn tímann gert“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Efins um djarfa fantasíu eiginkonunnar – „Hvað á ég að gera?“

Efins um djarfa fantasíu eiginkonunnar – „Hvað á ég að gera?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ný heimildarmynd varpar ljósi á leynda sjúkdómsbaráttu Marilyn Monroe

Ný heimildarmynd varpar ljósi á leynda sjúkdómsbaráttu Marilyn Monroe
Fókus
Fyrir 4 dögum

Lét athugasemd falla um gestahlutverk fyrrverandi í Friends

Lét athugasemd falla um gestahlutverk fyrrverandi í Friends