fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fókus

Halli borðaði upp úr ruslatunnum á Spáni og bjó allslaus í yfirgefnu munkaklaustri

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Miðvikudaginn 6. janúar 2021 12:42

Halli Hansen. Mynd/Stefán Karlsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halli Hansen er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar. Hvort sem það er að sitja í fangelsum, vera heimilislaus, ferðast um heiminn án farangurs, eru það allt hlutir sem Halli hefur prófað. Hann hefur í gegnum tíðina komið víða við og ferðast um allan heim. Í fyrra ákvað hann að leggja land undir fót og fór til meira en tuttugu landa.

„Ég var bara einn að ferðast á mótorhjólinu mínu og þurfti að vera mikið í trú og trausti, af því að ég vildi leyfa þessu að vera í flæði. Sums staðar talaði ég ekki tungumálið, en á öllum stöðunum var ég að æfa mig á því að finnast ég vera heima hjá mér. Þetta ferðalag var í raun verkleg æfing í að ákveða að heima væri hvar sem ég er hverju sinni. Í stað þess að hugsa mig sem gest á hverjum stað, hugsaði ég með mér að ég væri hluti af heildinni og að ég væri ekkert minna heima en þegar ég er á Íslandi. Það er frábært að geta liðið eins og maður sé í öryggi heimilisins hvar sem maður er,“ segir hann.

Bjó allslaus í munkaklaustri

Halli fer í þættinum meðal annars yfir það þegar hann bjó allslaus í yfirgefnu munkaklaustri á Spáni og þurfti í fyrsta sinn að borða upp úr ruslatunnu til að svelta ekki.

„Ég átti ekki neinn pening og var hústökumaður í yfirgefnu klaustri á Suður Spáni. Ég var búinn að vera án matar lengi þegar ég varð að gera eitthvað. Þá fór ég yfir það í huganum hvort ég væri maður sem myndi ræna fólk, en fann að það samræmdist ekki gildum mínum. Ég vildi ekki stela eða betla og komst að því að til að taka ábyrgð á sjálfum mér yrði ég líklega að borða upp úr ruslatunnu. Ég man vel þegar ég gekk að fyrstu tunnunni, lyktin sem gaus upp og flugurnar í kring og ég endaði á að labba í burtu og lagði ekki í það. Daginn eftir gerði ég aðra tilraun og gugnaði aftur og það var ekki fyrr en ég  hugsaði um allt fólkið sem borðar og lifir á ruslahaugum alla ævi úti um allan heim að ég áttaði mig á því að ég væri ekki betri en mínir minnstu bræður og systur. Það gaf mér styrkinn til að brjóta odd af oflæti mínu og týna myglað brauð upp úr ruslinu og borða það svo loksins. Það var ógeðslegt, en eftir að þetta skref hafði verið stigið var ég ánægður með að hafa gert þetta,“ segir hann.

Halli segir að það hafi nánast verið eins og lífið hafi vakað yfir sér eftir að hann ákvað að taka þetta skref.

„Þetta var svona „me vs. life“ augnablik, en í framhaldi af þessu var eins og það væri einhver að vaka yfir mér. Þá gerðist það ítrekað að ég var kannski að labba í einhverjum garði og þá sá ég poka með eins dags gömlu brauði eða öðru sem gat dugað mér sem fæða í nokkra daga. Ég upplifði þetta eins og ákveðinn hjall sem ég varð að fara yfir og það gerðist eitthvað í kjölfarið. Við eigum öll persónulegt samband við lífið sjálft og gerðist eitthvað í mínu sambandi við lífið.

Halli hefur undanfarin ár unnið við ferðaþjónustu og í kvikmyndagerð hérlendis og kvartar ekki þó að árið 2020 hafi verið erfitt í þessum geirum vegna Covid faraldursins. Í þættinum fara Halli og Sölvi yfir reynslu þessa magnaða manns, hvað hann hefur lært á sínu ferðalagi, hvað framtíðin ber í skauti sér og margt fleira..

Þú getur horft á þáttinn í heild sinni hér að neðan eða hlustað á hann á Spotify.

https://www.youtube.com/watch?v=Y35LzCl45es&t=3209s

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“
Pressan
Fyrir 2 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Snorri vissi varla hvaðan á sig stóð veðrið þegar Sigmundur Davíð og Bergþór bönkuðu upp á

Snorri vissi varla hvaðan á sig stóð veðrið þegar Sigmundur Davíð og Bergþór bönkuðu upp á
Fókus
Fyrir 4 dögum

Álfrúnu blöskrar ljótar athugasemdir um pabba sinn og Felix á samfélagsmiðlum

Álfrúnu blöskrar ljótar athugasemdir um pabba sinn og Felix á samfélagsmiðlum