Þýsk útgáfa tímaritsins Playboy skartar mæðgum sem sátu fyrir naktar saman. Um er að ræða sjónvarpsþáttaleikkonuna Claudelle Eckert, sem er 46 ára, og dóttur hennar Romy Eckert, sem er 23 ára.
Claudelle segir að eftir nokkra umhugsun hafi þær tekið tilboði Playboy enda séu þær hvort eð er nánast alltaf naktar heima við. Dóttir hennar, Romy, segir að það hafi vissulega verið dálítið óþægilegt að vera nakin fyrir framan myndavélar þrátt fyrir að hún sé nektarsinni og sóli sig gjarnan á nektarströndum. Móðirin Claudelle hefur hins vegar áður setið fyrir nakin á síðun Playboy. Myndatakan með dótturinni var hennar hugmynd en eftir dálitla umhugsun leist dótturinni vel á hugmyndina.
Claudelle segir í viðtali við Bild að hún skilji vel að fólk hugsi með sér að óhugsandi sé að mæðgur geri svona nokkuð saman. En þær tvær séu einfaldlega mjög góðir vinir.
Aðspurð hvað þær mæðgur ætli að gera fyrir peningana sem Playboy greiðir þeim fyrir myndirnar segir Claudelle að þær hafi ekki ákveðið það. Það séu skrýtnir tímar vegna Covid-19 og fyrst um sinn sé féð bara geymt inni á reikningi.
Sjá má viðtal við mæðgurnar og uppstillingar úr myndatökunum í myndbandi frá Bild.