fbpx
Mánudagur 09.júní 2025
Fókus

Pizzan í Þrastalundi sem er að ergja netverja

Bjarki Sigurðsson
Miðvikudaginn 26. maí 2021 12:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Twitter-notandinn Clarke French er einn þeirra ferðamanna sem komnir eru til landsins til að njóta fallegrar náttúru. Hann bjóst samt líklegast ekki við þeirri framandi matarmenningu sem Þrastalundur bauð honum upp á.

Hann birti á dögunum mynd af pizzu sem hann fékk á veitingastaðnum. Hann hafði pantað sér venjulega Hawaii-pizzu og bjóst líklegast við pizzu með skinku og ananas eins og venjan er. Þrastalundur býður hins vegar upp á kirsuber á sínum Hawaii-pizzum.

Það voru ansi margir sem svöruðu færslu Clarke og lýstu yfir reiði sinni á þessari óvæntu áleggstegund. Þess ber að geta að kirsuber eru tilgreind sem ein áleggstegunda pizzunnar á matseðli Þrastalundar og því hefði þetta ekki átt að koma Clarke á óvart.

Það eru þó ekki allir sammála um að pizzan sé slæm og segjast vilja háma þessa pizzu í sig.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Ragnhildur er innflytjandi – „Aldrei fengið yfir sig holskeflu fúkyrða fyrir að hafa ekki aðlagast“

Ragnhildur er innflytjandi – „Aldrei fengið yfir sig holskeflu fúkyrða fyrir að hafa ekki aðlagast“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hrósa hvort öðru á rauða dreglinum – Sögusagnir um ástarsamband fá byr undir báða vængi

Hrósa hvort öðru á rauða dreglinum – Sögusagnir um ástarsamband fá byr undir báða vængi