fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fókus

Sakamál: Blóðbaðið á Valentínusardeginum

Erla Dóra Magnúsdóttir
Laugardaginn 13. febrúar 2021 21:30

Hjónin á meðan allt lék í lyndi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rómantíkin lá í loftinu þann 14. febrúar þar sem Richard Schoeck beið þolinmóður eftir eiginkonu sinni, Stacey. Þau höfðu áformað að hittast í almenningsgarði og skiptast þar á valentínusargjöfum og líklega nokkrum kossum. Hann náði þó aldrei að hitta konu sína því þegar Stacey bar að garði var Richard allur. Hann lá á jörðinni í eigin blóði, eftir að hafa verið skotinn fimm sinnum í brjóst og höfuð.

Eitthvað undarlegt á seiði

Í fyrstu leit út fyrir að um tilviljanakennt voðaverk væri að ræða, enda rán í almenningsgörðum nokkuð algeng í Bandaríkjunum. Hins vegar runnu á lögreglu tvær grímur þegar hún veitti því eftirtekt að Richard bar enn giftingarhring sinn, úrið, sem og veskið sitt. Þetta gaf til kynna að morðið hefði verið að yfirlögðu ráði. En hver vildi myrða Richard og hvers vegna?

Lögreglumaðurinn sem var fyrstur á vettvang, sagði að hann hefði strax fengið á tilfinninguna að eitthvað undarlegt væri á seyði. Morðið var of heiftarlegt til að vera tilviljanakennt. „Richard var bara venjulegur maður og auk þess óvopnaður.“

Eins fannst lögreglu nokkuð undarlegt að Stacey hafði strax á vettvangi brotsins bent þeim í átt að mögulegum geranda, en hún fór óspurð að segja lögreglu frá því að hún hefði um árabil átt í ástarsambandi við samstarfsfélaga sinn, Juan Reyes.

Ástmaðurinn undir grun

Það gæti útskýrt heiftina. Hafði þetta verið ástríðuglæpur? Myrti Juan eiginmann Stacey til að losa sig við samkeppnina?

„Þegar við spurðum hana hvort hún teldi að Juan gæti verið gerandinn svaraði hún að hún vildi ekki trúa því að hann væri það, en hún væri þó ekki viss,“ sagði lögreglumaðurinn í samtali við fjölmiðla.

Lögregla var fljót að hafa hendur í hári Juans. Enda var hann ekki í felum heldur í vinnunni, að vanda. Ósköp rólegur ræddi hann við lögreglu og skýrði frá því að ástarsambandi hans við Stacey væri svo gott sem lokið, þar sem hann væri að reyna að ná aftur saman við fyrrverandi eiginkonu sína. Hann samþykkti einnig að gangast undir lygapróf og var þar að auki með fjarvistarsönnun.

Ábending sem öllu breytti

Rannsóknarlögreglumenn voru ráðvilltir. Ef Juan var saklaus, hver myrti þá Richard? Á vettvangi glæpsins, afskekktum og lítt förnum stað almenningsgarðsins, fundust hjólför þriggja bíla. Bíl Richards, bíl Stacey en einnig eftir þriðja bílinn sem hafði komið á svæðið á undan Richard og farið áður en Stacey kom. Lögreglu tókst að finna út hvaða tegund af dekkjum var undir þriðja bílnum. En ekki hjálpaði það rannsókninni þar sem þúsundir bíla notuðu þessa dekkjategund.

Rannsóknin virtist hafa siglt í strand. Þá barst ábending sem breytti öllu. Maður sem starfaði við tölvur á vinnustað Stacey átti að fara í gegnum tölvupóst hennar til að eyða þaðan ruslpósti og óværu. En síðast þegar hann gerði það veitti hann því eftirtekt að innhólfið hennar hefði verið hreinsað. Hann sagði að slíkt væri afar óvenjulegt en benti lögreglu á að hann hefði varaafrit af öllum gögnum sem gæti hafa verið eytt. „Og hann spurði hvort við vildum fá gögnin og við svöruðum, „Algjörlega!“, sagði lögreglumaðurinn.

Grunsamlegar millifærslur

Það var eyddi tölvupósturinn sem kom þeim á rétta sporið. Þar fundust tvær millifærslubeiðnir þar sem peningar frá læknastofu voru lagðir inn hjá konu að nafni Lynitra Ross. Millifærslurnar námu um 1,2 milljónum króna. Lynitra þessi var starfsmaður læknastofunnar og jafnframt leigjandi Stacey. Þegar lögregla yfirheyrði

Lynitru hélt hún því fram að peningarnir væru fyrir viðhaldi á leiguhúsnæðinu. En lögregla var ekki sannfærð. Þá barst önnur ábending sem vakti athygli lögreglu. Frænka Stacey, Connie Hearne, bað lögregluna að hafa uppi á bifreið sem Stacey hafði verið falið að selja fyrir ömmu sína og afa, en hvorki bíllinn, né söluandvirðið hafði skilað sér til eigenda bifreiðarinnar.

Bíll þessi fannst fyrir utan heimili Lynitru og reyndist vera með sömu tegund dekkja og höfðu skilið eftir sig þriðja farið á vettvangi morðsins.

Lynitra

Herra árangur

Lögregla fann jafnframt út að símtal hefði borist úr almenningsgarðinum um það leyti sem Richard lét lífið. Símtalið var frá númeri sem var vistað í síma Stacey sem Reggie eða „Herra árangur“ og það sem meira var hafði Reggie þessi verið að hringja í enga aðra en Lynitru.

Nú virtist atburðarásin vera að skýrast. Aðeins þremur mínútum eftir að Lynitra hafði fengið símtalið frá Herra árangri þá sendi hún skilaboð til Stacey: „Gleymdi að segja þér að ég verð sein á morgun. Meðan ég man, gleðilegan valentínusardag“. Síðar kom í ljós að í skilaboðunum fólst staðfesting Lynitru á að Richard væri látinn og að Stacey væri óhætt að fara að almenningsgarðinum til að „uppgötva“ lík hans.

Lögregla taldi sig hafa safnað nægum gögnum til að handtaka þremenningana og við yfirheyrslur var Stacey fljót að játa að hafa ráðið Herra árangur til að bana eiginmanni sínum. Hins vegar taldi hún sig hafa réttlætanlegar ástæður.

Herra árangur

Vildi hann dauðan

Stacey sagði lögreglunni að Richard hefði verið að misnota börnin hennar. Hún kvaðst byggja þá ályktun á nokkru sem eitt barna hennar sagði henni. Hún deildi raunum sínum með vinkonu sinni, Lynitru.

„Ég sagði henni að ég vildi ekki flækja lögreglunni inn í þetta, ég vildi heldur ekki skilnað, ég vildi hann dauðan ef hann væri að misnota börnin mín.“

Viðbrögð Lynitru komu á óvart. Í stað þess að hughreysta hana svaraði hún því til að hún þekkti mann sem gæti losað Stacey við Richard varanlega, Herra árangur.

Lynitra kom á fundi með Reggie og Stacey og þar sömdu þau um verð fyrir verkið. Í kaupauka ætlaði Stacey að gefa Reggie bifreið ömmu sinnar og afa sem og gefa Lynitru húsið sem hún var að leigja.

Viku síðar fóru þau öll þrjú saman í almenningsgarðinn til að kanna aðstæður.

„Hann sagði já, þetta er fullkominn staður. Hann meira að segja sagði eitthvað eins og „ég gæti þurft að nota þennan stað oftar,“ sagði Stacey við yfirheyrslur.

Ætlunin var að láta morðið líta út sem rán. En Reggie klúðraði þar málunum. Hann fattaði ekki að fjarlægja verðmæti af líki Richards og auk þess skaut hann Richard alls fimm sinnum óvopnaðan. Hefði Reggie fattað það þá hefði kannski aldrei komist upp um leigumorðið.

Kaldlynd og siðlaus

Lögregla ræddi við börn Stacey og komst þannig að því að aldrei hefði verið um neina misnotkun að ræða. Stacey reyndi þá að skipta um afsökun og hélt því fram að hún hefði óttast að Richard ætlaði að skilja við hana og svipta hana forræði barnanna.

Fyrir dómi lýsti saksóknari Stacey sem kaldlyndri, stjórnsamri og siðlausri konu sem svifist einskis til að ná sínu fram og hikaði ekki við að ljúga.

Þrátt fyrir að reyna ýmislegt til að draga úr hlut sínum í málinu eða réttlæta gerðir sínar voru þremenningarnir sóttir til saka og öll dæmd til lífstíðar í fangelsi. Þar geta þau varið öllum sínum framtíðar valentínusardögum og hugleitt hvort það hefði nú ekki verið skynsamlegra að kaupa bara blóm eins og aðrir frekar en að leggja í valentínusar-blóðbað.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Í gær

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar