fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fókus

Myndaserían sem allar konur þurfa að sjá – Það sem er sýnt og það sem er falið

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Miðvikudaginn 27. janúar 2021 12:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Megan Rose Lane er lífsstílsþjálfi, höfundur og hlaðvarpskynnir. Hún er með yfir 300 þúsund fylgjendur á Instagram og deilir reglulega valdeflandi færslum fyrir konur. Ný færsla frá henni hefur vakið mikla lukku meðal netverja og hafa mörg hundruð manns þakkað henni fyrir að birta myndirnar í færslunni.

Megan sýnir allar hliðar þess að æfa, ekki bara glansmyndina sem birtist okkur daglega á samfélagsmiðlum.

Megan deilir fyrst mynd af sér í æfingarfatnaði og haldandi á ketilbjöllu. Með fyrstu myndinni skrifar hún: „Það sem þau sýna þér.“

Síðan deilir hún sex öðrum myndum sem sýna allar hliðar þjálfunar, og skrifar með: „Það sem þau sýna þér ekki.“

Ýttu á örina til hægri til að sjá fleiri myndir.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Megan Rose Lane (@megan_rose_lane)

Með myndunum skrifar Megan hvetjandi skilaboð. „Þú hefur dýpri tilgang heldur en að fá slétta húð, vera með skorna kviðvöðva eða fá stæltan rass. Þú ert lifandi manneskja með vonir, drauma, kæki, ástríðu og sögu til að segja. Þú ert svo miklu meira en skelin sem líkami okkar er, ég lofa,“ segir hún.

Eins og fyrr segir sló færslan í gegn hjá netverjum sem hafa þakkað henni fyrir að vera „raunveruleg“ og „hreinskilin,“ og segja að þetta sé eitthvað sem allir þurfa að sjá, sérstaklega ungar konur sem finna fyrir aukinni útlitspressu frá samfélaginu.

„Ég þurfti virkilega á þessu að halda,“ segja fjölmargar konur við færsluna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Þessi fimm velja Ungfrú Ísland 2026

Þessi fimm velja Ungfrú Ísland 2026
Fókus
Fyrir 4 dögum

Val Kilmer rís upp frá dauðum með aðstoð gervigreindar og sumum til mikillar skelfingar – „Þið eruð viðbjóðsleg“

Val Kilmer rís upp frá dauðum með aðstoð gervigreindar og sumum til mikillar skelfingar – „Þið eruð viðbjóðsleg“
Fókus
Fyrir 5 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Einhver lest sem við settum í gang og fór algjörlega út af sporinu“

„Einhver lest sem við settum í gang og fór algjörlega út af sporinu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Þriðja dóttirin fædd

Þriðja dóttirin fædd
Fókus
Fyrir 1 viku

Raunveruleikastjarnan látin aðeins þrítug að aldri

Raunveruleikastjarnan látin aðeins þrítug að aldri