fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fókus

Bestu vinir fræga fólksins

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Sunnudaginn 20. september 2020 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er sagt að hundurinn sé besti vinur mannsins. Samfélag hundaeigenda á Íslandi er stórt og er fræga fólkið ekki undanskilið. Franskur bolabítur virðist vera vinsæl tegund meðal stjarnanna og einnig að nefna hundinn sinn Bella.

Hér má líta á bestu vini fræga fólksins á Íslandi.

Mynd/Anton Brink

GÍSLI MARTEINN

Fjölmiðlamaðurinn Gísli Marteinn Baldursson á Golden Retriver sem fékk nafnið Tinni, í höfuðið á teiknimyndapersónuninni og rannsóknarblaðamanninum Tinna. Hundurinn Tinni er með sína eigin Twitter-síðu og tæplega 650 fylgjendur.

Sósa. Aðsend mynd.

SVALA BJÖRGVINSDÓTTIR

Söngkonan fékk sér hund af tegundinni Pug í febrúar 2019. Hundurinn fékk nafnið Sósa og er eins og hálfs árs gömul. Nafnið passar vel við Sósu, en hún elskar kokteilsósur og pítsur.

Jón Gnarr og Klaki. Mynd/Anton Brink

JÓN GNARR

Grínistinn og fyrrum borgarastjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, er mikill hundavinur. Jón átti lengi vel hundinn Tobba af Terrier-kyni sem vinur hans og samgrínari Sigurjón Kjartans hugsaði um þegar Jón bjó tímabundið í Bandaríkjunum. Þegar Jón kom heim voru Sigurjón og Tobbi orðnir svo miklir mátar að Sigurjón fékk að eiga Tobba. Í dag á Jón hundinn Klaka.

https://www.instagram.com/p/Br0HelMlshw/

GYLFI SIGURÐARSON OG ALEXANDRA HELGA ÍVARSDÓTTIR

Hjónin hafa átt hundinn Koby frá árinu 2012. Þau halda árlega upp á afmæli Koby með köku og öllu tilheyrandi. Hann er ekki skilinn útundan og það má sjá hann á brúðkaupsmyndum hjónanna. Hann flaug einnig með þeim í einkaþotu til Ítalíu eftir brúðkaupið. Koby er af tegundinni Cavalier.

https://www.instagram.com/p/CC1fNQVgAAN/

BIRGITTA LÍF

Birgitta Líf Björnsdóttir, áhrifavaldur og markaðsstjóri World Class, á hundinn Bellu af tegundinni French Bulldog. Birgitta fékk Bellu í mars 2019 og hefur síðan þá verið dugleg að birta myndir af henni á Instagram.

https://www.instagram.com/p/CCW2vUkDCeX/

SARA SIGMUNDSDÓTTIR

CrossFit-stjarnan Sara Sigmundsdóttir fékk sér hund í byrjun júlí 2020. Krúttið fékk nafnið Moli Söruson og viðurkenndi Sara að hún væri orðin biluð hundakona. „Moli er stærsti, þyngsti og mesti klaufinn af fimm hvolpum sem hundur systur minnar eignaðist í miðri sóttkví […] Ég get með sanni sagt að ég hef aldrei elskað neinn eins mikið,“ sagði hún.

https://www.instagram.com/p/CEz5wggAV43/

SÖLVI TRYGGVA

Í síðustu viku greindi fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason frá því að nýr fjölskyldumeðlimur væri mættur. „Algjört ofurkrútt og strax orðinn mikill gleðigjafi,“ sagði hann á Instagram. Sölvi greindi ekki frá nafni hvolpsins sem virðist vera af tegundinni French Bulldog.

Mynd/Twitter

DORRIT MOUSSAIEFF

Það komst í heimspressuna þegar Dorrit tilkynnti komu hins nýja Sáms, sem er klónn af Sámi, gamla hundi hennar og Ólafs Ragnars Grímssonar. Fráfall hins upphaflega Sáms tók mikið á Dorrit og ákváðu hjónin að leita óhefðbundinna leiða í leit að nýjum hundi. Þau höfðu samband við bandaríska klónunarfyrirtækið ViaGen Pets og kom hinn nýi Sámur í heiminn í október 2019. Hann fékk nafnið Samson og kom loksins til Íslands í júlí 2020.

https://www.instagram.com/p/B9RUhznBZXS/

TANJA ÝR OG EGILL HALLDÓRSSON

Áhrifavaldaparið og frumkvöðlarnir Tanja Ýr Ástþórsdóttir og Egill Halldórsson eiga Chihuahua-hundinn Bellu sem er aðeins komin á aldur. Hún fær að ferðast með parinu um landið og fregnir herma að hún sé algjör dekurrófa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“
Pressan
Fyrir 2 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín
Fókus
Fyrir 5 dögum

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla