Líkt og flestir hafa örugglega áttað sig á núna þá hefur verið boðað til samkomubanns á Íslandi, vegna COVID-19 veirunnar. Eðlilega þá fara fréttirnar misvel í fólk. Sumir eru áhyggjufullir, aðirir áhyggjulausir, og enn aðrir eru bara í sprellstuði.
Íslenska Twitter-þjóðin hefur verið virk frá því að fregnirnar bárust, en fjölda tísta um samgöngubannið má finna á forritinu þessa stundina.
Hér að neðan má sjá nokkur tíst er varða samgöngubannið.
Hvað verður nú um svinghópinn á Seltjarnarnesi?
— Þorsteinn Guðmunds (@ThorsteinnGud) March 13, 2020
„Jæja krakkar, núna er mikilvægt að þið hættið alveg að bora í nefið á hvoru öðru, einnig er bannað að stinga puttanum í rassinn og þefa, og alls alls ekki koma nær en hvoru öðru en 2m. Gulli ætlar að útskýra metrakerfið á eftir. Heyrið þið tveggja ára þarna aftast alveg í mér?“ https://t.co/CJZBL4CL8N
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) March 13, 2020
Mér líður eins og við séum að skríða inn í góðan McCarthyisma hérna. Í hvert skipti sem ég sé einhvern hósta vil ég helst geta hringt á eitthvað viðeigandi yfirvald og sent öryggislögreglu á viðkomandi.
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) March 13, 2020
Jæja þá er maður bara kominn í samkomubann
— Siffi (@SiffiG) March 13, 2020
Kórónaveiran er messy bitch who loves drama pic.twitter.com/h3LV5FEpCN
— Siffi (@SiffiG) March 13, 2020
Úffff margir að fara að slá ný met í raðrúnki í þessu samkomubanni
— Siffi (@SiffiG) March 13, 2020
nú kemur áralöng reynsla af víðáttu- og félagsfælni sér ansi vel, núna, loksins, er minn tími kominn
— 𝕖¯\_(ツ)_/¯𝕓𝕖𝕥 (@jtebasile) March 13, 2020
Nú væri fínt ef nú kæmu upp fullt af Internet sensations.
Almar mætti fara aftur í kassann, @VilhelmNeto og @IngaLalu gætu dritað út myndböndum. Bjarni Ben gæti bakað nokkrar kökur. Maggi Mix OMG MAGGI MIX!!!
Er ekki hægt að leggja inn á þetta fólk? (Nema BB hann er RICH)
— ✨ IngaBoogie ✨ (@Inga_toff) March 13, 2020
Ætli dagurinn fari ekki mest í að commenta „við eigum að treysta sérfræðingunum“ á þá sem finnst þetta of miklar aðgerðir
— Gunnar☀️ (@00qq22) March 13, 2020
Reyndum að tala um annað en covid-19 eða vinnunna í morgunkaffinu í dag. Held við höfum mest náð ca 20 sekúndum.
— Vala Jónsdóttir (@valawaldorf) March 13, 2020
Skil ekki fólk sem er að HÓLKA klósettpappír. Er planið í sóttkví að kúka stanslaust í tvær vikur?
— Pétur M. Urbancic (@PeturMarteinn) March 13, 2020
#Samkomubann – út að hlaupa, hjóla, ganga. Elda góðan mat og baka eitthvað fínerí. Hvaða markmið setur þú þér næstu fjórar vikurnar? Hver er með skemmtilegustu hugmyndirnar um að nýta þennan tíma vel?
— Halldór Jörgensson (@halldorj) March 13, 2020
“Nú er kominn tími á að Íslendingar verði sendir heim í kósý, allir sem einn.”
— Sigurður Bjartmar (@sbjartmar) March 13, 2020
Gríðarlegt ofmat á eigin vinsældum að fella niður messuhald í 100 manna samkomubanni. pic.twitter.com/5kSSM93ruv
— gunnare (@gunnare) March 13, 2020
Þegar ég heyrði að menntamálaráðherra og staðgengill skóla- og frístundasviðs væru viðstaddar fundinn fékk ég í magann. Ef grunn- og leikskólum yrði lokað núna myndu sennilega svona 20 vinkonur mínar ganga í sjóinn einhverntímann á næstu fjórum vikunum.
— Hildur ♀ (@hillldur) March 13, 2020
úff ekkert djamm næstu 4 vikurnar en hvað með ræktina? skellir world class í lás?
— Óskar Steinn 🏳️🌈🌹🇪🇺 (@oskasteinn) March 13, 2020
ég vil nota tækifærið til að lýsa yfir ánægju minni með ríkisstjórnina og heilbrigðisyfirvöld á þessum erfiðu tímum. það er ekki sjálfgefið að eiga svona solid kerfi sem virkar svona vel
— Jon Gnarr (@Jon_Gnarr) March 13, 2020
Byrjaði í síðustu viku í hálfu afleysingastarfi með sveigjanlegan vinnutíma, þar sem talað var um að fyrsta mánuðinn væri ég bara að læra og koma mér þægilega inn í – væri flott með 5 mánaða gamalt barn. Vinnan er verkefnastjóri borgaralegra ferminga hjá Siðmennt. Yikes.
— Margrét Erla Maack (@mokkilitli) March 13, 2020
Er einhver hér sem getur upplýst lítinn og viðkvæman stað um það hverjar reglurnar eru? Kaffihúsið reynir umfram allt að gera þetta með almennri skynsemi – en ef vinahópur vill hittast í einn drykk um kvöld, má hann þá ekki gera það nema með 2 metra á milli? https://t.co/iUz0DImCS9
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) March 13, 2020
Athugið og munið og gleymið ekki að kærleikurinn er svo bráðsmitandi kvikindi að hann þarf hvorki kossa né knús til að ganga manna á milli, hann þarf í mesta lagi hugsun, þarf ekki að vera heil, má vera hálf hugsun, það má rétt móta fyrir henni í örlitlu beygluð brosi til dæmis.
— Dagur Hjartarson (@DagurHjartarson) March 13, 2020