fbpx
Laugardagur 18.maí 2024
Fókus

Sakamál: Tveir látnir eiginmenn og ótrúlegt sjálfsmorðsbréf

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 26. desember 2020 20:00

Stacey Castor á leið í réttarsal. Youtube-skjáskot

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stacey Ruth Castor var fædd Stacey Daniels og ólst upp í New York fylki. Hana dreymdi um að gerast lögfræðingur og hún þótti vera vel gefið barn. Ekkert varð þó úr slíkum áformum því Stacey varð kornung ástfangin af Michael Wallace, þau giftust árið 1985 og eignuðust tvær dætur á næstu árum.

Michael starfaði sem vélvirki en Stacey starfaði hjá sjúkrabílastöð. Hjónin voru í litlum efnum og Stacey kvartaði undan drykkju eiginmannsins. Er leið að jólum árið 1999 veiktist Michael illa af ókunnum ástæðum. Honum versnaði og batnaði á víxl en gekk illa að hrista af sér veikindin. Um það leyti sem hann ætlaði að hafa samband við lækni andaðist Michael á stofusófanum á heimilinu. Það var 11. janúar árið 2000. Dánarorsökin var hjartaáfall. Það þótti sérkennilegur dauðdagi hjá svo ungum manni með enga sjúkrasögu, en við þetta var látið sitja.

Hryllilegur dauðdagi

Árið 2003 giftist Stacey manni að nafni David Castor og bar nafn hans upp frá því. Castor rak eigið fyrirtæki sem sérhæfði sig í sölu, uppsetningu og viðgerðum á loftræstikerfum. Sambúðin súrnaði nokkuð fljótt. David átti sín eigin börn og hafði lítinn áhuga á að sinna dætrum Stacey. Honum þótti yngri dóttirin hafa truflandi áhrif á sambandið. Árið 2005 lentu Stacey og David í löngu og heiftarlegu rifrildi. Ágreiningurinn snerist um að David vildi að þau tvö færu burtu saman í tveggja vikna frí en Stacey vildi ekki skilja dóttur sína eftir heima svo lengi.

Fimm dögum eftir þetta rifrildi hringdi Stacey í neyðarlínuna og sagðist hafa áhyggjur af eiginmanni sínum sem væri búinn að læsa sig inni í herbergi og færi ekki til vinnu. Er lögregla kom á staðinn svaraði David ekki kalli og hurðin að herberginu var brotin upp.

David lá látinn í rúmi sínu. Í herberginu fundust leifar af frostlegi, í glasi á náttborðinu og brúsa undir borðinu. Krufning leiddi í ljós að hann hafði innbyrt frostlög og látist af þeim sökum. Þetta er sársaukafullur og hryllilegur dauðdagi. Það þótti ótrúlegt að David hefði valið þessa leið til að binda endi á líf sitt, fyrir utan að margir sem þekktu til hans töldu fráleitt að hann hefði verið í sjálfsvígshugleiðingum.

Grunur fellur á Stacey

Ekki fundust nein fingraför eftir David á glasinu eða brúsanum sem innihéldu frostlöginn. Hins vegar fundust fingraför Stacey á botni glassins. Þetta þótti afar grunsamlegt, því Stacey sagðist ekkert hafa farið inn í herbergið til hans undanfarna fimm daga.

Lögreglan hafði Stacey nú undir sterkum grun og fékk heimild til að grafa upp lík fyrri eiginmannsins, Michaels Wallace. Krufning á líkamsleifum Michaels Wallace leiddi í ljós að hann hafði líka innbyrt frostlög. Íbúð Stacey var hleruð, sem og sími hennar, og fylgst var með ferðum hennar. Athygli lögreglu vakti að um margra vikna skeið fór hún aldrei að leiðum eiginmanna sinna, en þeir voru jarðsettir hlið við hlið í kirkjugarði í New York.

Stacey varð mjög taugaóstyrk vegna grunsemda lögreglunnar. Hún reyndi að sækja sér ró og huggun í félagsskap eldri dóttur sinnar, Ashley, sem um þetta leyti var 19 ára. Þetta var árið 2007. Stacey bauð dóttur sinni drykk heima. Það kvöld reyndist afar örlagaríkt fyrir Stacey.

Stacey og David, seinni maður hennar. Youtube-skjáskot

Sjálfsmorðsbréfið ótrúlega

Um morguninn hringdi Stacey í Neyðarlínuna og sagði að dóttir hennar hefði tekið inn töflur og væri meðvitundarlaus. Farið var með Ashley á bráðadeild. Hún skildi eftir sig sjálfsmorðsbréf þar sem hún játaði á sig að hafa myrt bæði föður sinn og stjúpföður með því að byrla þeim frostlög. Hefði hún nú ákveðið að binda enda á líf sitt vegna samviskubits.

Ashley lifði veikindin hins vegar af og þegar hún komst til meðvitundar kannaðist hún ekki við að hafa skrifað sjálfsmorðsbréf. Það síðasta sem hún mundi var að hafa drukkið bragðvondan drykk sem móðir hennar hafði blandað og fært henni.

Í tölvu Stacey fundust mörg uppköst að sjálfsmorðsbréfinu og því vaknaði sterkur grunur um að hún hefði skrifað bréfið en ekki Ashley. Fleira grunsamlegt fannst: Erfðaskrá Davids Castor þar sem hann arfleiddi Stacey að öllum eigum sínum, en ekkert rann til barna hans. Enn fremur hafði komið fram að eftir dauða fyrri eiginmannsins, Michaels Wallace, gat Stacey leyst út 50 þúsund dala líftryggingu hans. Enn fremur þótti ótrúlegt að Ashley hefði getað myrt föður sinn, Michael, því hún var aðeins 12 ára er hann lést.

Stacey Castor var ákærð fyrir tvö morð, morðtilraun og fölsun á erfðaskrá. Réttarhöld í máli hennar hófust í janúar árið 2009 og stóðu í nokkrar vikur. Hún var fundin sek um alla ákæruliði. Kaldrifjaðir glæpir hennar þykja lýsa ótrúlegu kaldlyndi og siðleysi. Hún myrti tvo menn að því er virðist eingöngu í hagnaðarskyni og reyndi að myrða dóttur sína og klína glæpunum á hana.

Stacey Castor var dæmd í 60 ára fangelsi. Hún lét lífið í fangelsi árið 2016 úr hjartaslagi. Rannsókn leiddi hvorki í ljós sjálfsmorð né morð sem dánarorsök hennar. Hún var fædd árið 1967 og var á 49. ári er hún lést.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Lýtalæknar afhjúpa ástæðuna á bak við „lafandi“ húð Tom Cruise

Lýtalæknar afhjúpa ástæðuna á bak við „lafandi“ húð Tom Cruise
Fókus
Fyrir 2 dögum

Bergur Þór er nýr leikhússtjóri LA

Bergur Þór er nýr leikhússtjóri LA
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fyllti á framboðsfataskápinn á grænum markaði

Fyllti á framboðsfataskápinn á grænum markaði
Fókus
Fyrir 3 dögum

Keppendur reiðir og í áfalli eftir allt Júró-dramað – „Ég gerði mitt besta í þessum aðstæðum“

Keppendur reiðir og í áfalli eftir allt Júró-dramað – „Ég gerði mitt besta í þessum aðstæðum“