fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Fegurðarsamkeppnin misskilin því orðið er úrrelt

Fókus
Laugardaginn 5. desember 2020 11:15

Elísabet Hulda Snorradóttir, Miss Universe Iceland Mynd: Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Elísabet Hulda Snorradóttir bar sigur úr býtum í keppninni Miss Universe Iceland sem haldin var á dögunum. Hún segir kvikmyndina Miss Congenial­ity hafa verið kveikjuna að þátttöku sinni en hún fékk mikla gagnrýni fyrir að taka þátt í keppninni.

Texti: Íris Hauksdóttir

Eísabet Hulda er fædd og uppalin í Mosfellsbæ en bjó í frönskumælandi hluta Belgíu sem barn. Hún ferðaðist víða um heiminn vegna starfa foreldra sinna sem hún segir kveikjuna á áhuga sínum fyrir ólíkum tungumálum og menningarheimum. „Áhugi minn á Asíu kviknaði þegar ég var fjórtán ára og kynntist japanska stafrófinu Hiragana. Ég gerði mér margar ferðir á Borgarbókasafnið þar sem ég sat tímunum saman að kenna sjálfri mér japönsku. Árið 2016 ferðaðist ég í fyrsta skipti til Japans þar sem ég var skráð í tungumálaskóla yfir sumarið í borginni Hokkaido og bjó hjá yndislegri fósturfjölskyldu. Að sumarskólanum loknum fór ég síðan til Suður-Kóreu þar sem ég hitti pabba minn og við ferðuðumst saman heim til Íslands eftir viku í höfuðborginni, Seúl. Ég fór síðan aftur út næsta ár og eyddi þá lengri tíma í Suður-Kóreu þar sem ég var að vinna við sjálfboðavinnu. Það sumar var ég í sumarskóla í Tókýó og lærði tungumálið enn betur. Vorönnina 2018 tók ég síðan pásu frá framhaldsskólanum þar sem ég fékk styrk til þess að ferðast til Kýótó og vera „prufu“nemandi í nýjum tungumálaskóla þar.“

Elísabet Hulda Snorradóttir, Miss Universe Iceland Mynd: Valli

Eini nemandinn í kínverskum fræðum

Vorið 2019 lauk Elísabet framhaldsskólagöngu sinni og stefndi strax til Kóreu þar sem henni fannst ekkert nám heillandi hér heima. Í hálfgerðri rælni leit hún þó við á háskólakynningu og rak þar augun í kínversk fræði með þeim afleiðingum að hún skráði sig í BA-nám við Háskóla Íslands. „Ég held að ég sé eini nemandinn sem skráði sig í kínversk fræði sem aðalgrein þetta vor. Útskriftargjöfin mín úr framhaldsskóla var síðan ferð til Kína sem rættist loks-ins í janúar núna í ár, en það var rétt áður en COVID skall á. Ég og mamma vorum í Beijing yfir kínversku áramótin og borgin var alveg auð. Það var ekki fyrr en eftir fyrstu tvo dagana þar sem það kviknaði á perunni að fólk væri hvergi sjáanlegt út af veirunni. Við snerum aftur til Íslands fyrr en áætlað var vegna hræðslu um að festast í landinu ef landamæri skyldu lokast. Ég er nú á öðru ári í kínverskum fræðum og ákvað að taka aðra aðalgrein sem er japanskt mál og menning. Í báðum aðalgreinum er ætlast til þess að nemandinn fari í skiptinám á þriðja ári þannig ef COVID leyfir þá verð ég vonandi flutt til Kína næsta haust.“

Vildi upplifa ferlið í eigin persónu

„Ég tel kvikmyndina Miss Congeniality með Söndru Bullock vera stóra ástæðu fyrir því að ég fékk áhuga á að keppa. Ég horfði á hana stanslaust þegar ég var lítil og fór jafnvel inn í herbergi eftir á og byrjaði að herma eftir atriðunum sem gerðust í myndinni. Svona keppnir voru líka meira áberandi í samfélaginu þegar ég var yngri, og ég man eftir því að sjá fréttir um þær á forsíðunni á Fréttablaðinu og í sjónvarpinu. Frænka mín, Ósk Gunnarsdóttir, vann svo Ungfrú Reykjavík árið 2008 og ég man sterkt eftir því að segja fólki að það væri sko frænkan mín sem hefði unnið. Ég var líka svo forvitin um hvernig þetta ferli væri í alvörunni. Eftir að ég kynnti mér betur hvernig Miss Universe keppnin væri þá ákvað ég að sækja um og upplifa ferlið í eigin persónu.“

Nú tókstu líka þátt á síðasta ári, hvers vegna ákvaðstu að taka aftur þátt í ár?„Ég ætlaði mér að ferðast til Suður-Kóreu og Japans í sumar með vinkonum og fara síðan í skiptinám til Suður-Kóreu út haustönnina, en út af COVID breyttust plönin mín mikið. Ég ákvað að taka ábyrgu ákvörðunina sem var að fresta skiptináminu og vera hér heima í skólanum í ár til viðbótar. Ég varð frekar óörugg með framtíðina og hvað ég vildi gera með lífið mitt á því tímabili. Ég frétti síðan af því að það væri aftur búið að opna fyrir umsóknir þar sem einhverjir keppendur hefðu hætt við og það væri opið pláss. Ég fann fyrst fyrir smá mótspyrnu frá aðstandendum en ákvað samt að reyna á þetta aftur, og það skilaði sér.“

Elísabet Hulda Snorradóttir, Miss Universe Iceland

Sundfataatriðið dregur keppnina niður

Elísabet Hulda segist hafa fundið fyrir misjöfnum viðbrögðum í þau skipti sem hún tilkynnti sínum nánustu um þátttöku sína. Hún segist þó skilja inntak þeirrar gagnrýni enda sé fegurðarsamkeppnivandmeðfarið hugtak. „Álit á keppninni er að mínu mati misskilið því orðið sjálft er úrelt og lýsir ekki hvað þessar keppnir standa fyrir í nútímanum. Mér finnst þróun fegurðarsamkeppna voða áhuga-verð og sérstaklega þar sem fegurðarsamkeppnir hafa alltaf átt sér stað, þótt þær væru bornar fram á ólíkan máta. Í mínu tilfelli fékk ég ekki bestu viðbrögð þegar ég sótti fyrst um, og ennþá verri viðbrögð þegar ég sagðist ætla að gera þetta aftur. Ég fékk stanslaust að heyra: „En þú ert ekki týpan í þetta,“ eða: „Hvað er stelpa eins og þú að gera í þessu?“ Þegar ég heyrði þessar spurningar spurði ég alltaf til baka: „Hver er þá stelpan eða týpan til að gera þetta?“

Fólk varð þá pínu tekið til baka þar sem einu svörin sem þau höfðu var neikvæð ímynd. Það sem ég kunni mest að meta var þegar fólk spurði mig: „Hvað snýst þetta um?“ og „Af hverju ertu að þessu?“ því þá loksins gat ég útskýrt fyrir fólki af hverju þetta væri hlutur sem ég vildi gera og láta rætast. Fyrir mér er þátttakan ákveðið tækifæri til að vekja athygli á því sem liggur þér á hjarta. Og það er ekki eitthvað sem aðeins sigurvegarinn fær, heldur fá allar stelpur tækifærið til að gera það yfir tímabilið. Sigurvegarinn fer annars út á alþjóðlegt svið sem fulltrúi Íslands og hefur tækifæri til að kynna sig og landið sitt. Það álit að þessi keppni sé yfirborðskennd og snúist ekki um neitt annað en útlit er eitthvað sem við erum að berjast gegn. Það sem stingur mig líka er að þeir sem ekki þekkja til vísa oft til sundfataatriðisins með það að markmiði að draga keppnina niður. Á sama tíma fara Íslendingar margir hverjir í sund sirka tvisvar í viku.“

Keppnin í ár var þó óneitanlega eftirminnileg hvað varðar grímunotkun keppenda, hvernig var að æfa og sýna með slíkan búnað á andlitinu?„Það var upplifun. Þegar við vorum á æfingum vorum við með grímurnar á allan tímann. Síðan á lokakvöldinu þurftum við alltaf að vera tilbúnar með grímurnar á okkur þar sem það fór eftir því hversu margar stelpur voru á sviðinu og fjarlægðar milli okkar hvort við þurftum að klæðast grímum eða ekki. Okkur var skipt í tvo hópa yfir daginn með tileinkuð svæði og okkur var haldið í sundur nema þegar við fórum í rennsli með grímurnar á. Það skemmtilega við þetta er að vita að við erum eini hópurinn sem mun þurfa að halda sýningu klæddur í grímur. Grímurnar segja stóra sögu um hvað er búið að vera í gangi í heiminum þetta ár og myndirnar frá keppnisdeginum eru einstök minning sem ég mun alltaf halda utan um.“

Flytur út ef COVID leyfir

Sjálf segist Elísabet Hulda alltaf hafa mikinn áhuga á leiklist bæði þegar kemur að kvikmyndum og leikhúsi. Hún sé sömuleiðis hrifin af ferlinu baksviðs og þeirri vinnu sem það taki að glæða atriðin lífi. „Ég stefni á að sækja um í leiklistarskólum, en stærsta áskorunin er sú að áhugamálin mín liggja að mestu leyti í Asíu. Ég er því búin að vera að skoða leiklistarskóla í þeim löndum. Þegar ég hugsa út í framtíðina mína sé ég mig alltaf vera búsetta einhvers staðar í Asíu. Ég er ekki með smáatriðin á hreinu en það sem skiptir mestu máli er að ég verði hamingjusöm í því sem ég er að gera. Markmiðið mitt er að kunna japönsku, kóresku og kínversku reiprennandi fyrir 25 ára aldur. Síðan vil ég læra taílensku og kantónísku og vonandi einn daginn rifja upp frönskukunnáttu mína. En eins og staðan er í dag er ekki komin föst dagsetning fyrir Miss Universe-keppnina, það fer allt eftir hvernig ástandið mun vera í heiminum og hvort það verður möguleiki á að ferðast. Fram að keppninni mun ég taka við þeim verkefnum sem felast í að vera Miss Universe Iceland og ég vil nota þennan dýrmæta tíma sem ég hef til þess að sinna starfinu vel. Eftir keppnina úti mun ég síðan fá að fylgjast með næsta hóp og leiðbeina þátttakendum um hvað það sé að vera Miss Universe Iceland og loksins krýna næstu drottningu. Þegar ég set kórónuna á hilluna mun ég síðan flytja út ef COVID leyfir. En eins og er er ég að njóta þess að vera í núinu þar sem þetta verður búið áður en ég veit af því. Framtíðin er í smá óvissu en það sem ég veit er að hún verður björt.“

Elísabet Hulda Snorradóttir, Miss Universe Iceland
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 2 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 2 dögum

Grunaði að eiginkonan væri að halda framhjá – „Sannleikurinn var tvöfalt verri“

Grunaði að eiginkonan væri að halda framhjá – „Sannleikurinn var tvöfalt verri“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“