fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Sölvi Tryggva: „Ég þorði ekki að sofa í íbúðinni minni í heila viku“

Fókus
Föstudaginn 4. janúar 2019 20:53

Sölvi Tryggvason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sölvi Tryggvason fjölmiðlamaður og rithöfundur opnar sig inn að kviku í helgarviðtali við Fréttablaðið sem birt er á morgun. Sölvi sem lengi starfaði fyrir Stöð 2 og stýrði þáttum á Skjá einum við góðan orðstír og var einn okkar allra vinsælasti fjölmiðlamaður segir frá því að hann hafi verið greindur með kvíðaröskun á háu stígi, athyglisbrest, svima­heil­kenni, með tvær eða þrjár krónískar meltingar­truflanir, fóta­ó­eirð, síþreytu, kulnun og margt fleira.

Sölvi hefur nú skrifað bók um reynslu sína og greinir þar frá hvaða meðhöndlun hann fékk og hvaða leið hann fór til að ná bata. Nú vill hann miðla reynslu sinni. DV birtir brot úr viðtalinu sem má nálgast í heild sinni á vef Fréttablaðsins og gefur nánari mynd af því hver leið Sölva var út úr ógöngunum. Sölvi eins og margir sem veikjast af kvíða faldi það um skeið og í raun alltof lengi svo ástandið vatt uppá sig. Á einum stað segir Sölvi:

„Ég var því alltaf að fara á klósettið, það var eini staðurinn sem ég gat farið á til að ná áttum. Þar stóð ég því bara, lokaði að mér og reyndi að ná áttum eftir að hafa tekið þriggja mínútna sím­tal. Þetta hljómar fá­rán­lega og ég get hlegið að þessu núna, en á þessum tíma­punkti gat ég ein­hvern veginn ekki bara sagt: Heyrðu, ég er bara sárlasinn.“ 

Það var síðan sem Sölvi var í ferð erlendis í Kyoto í Japan, fjarri vinnunni og öllum heimsins vandamálum á Íslandi sem hann uppgötvaði að hann gæti mögulega náð aftur að verða hann sjálfur og trú á að honum gæti batnað:

„Ég gæti orðið sjálfum mér líkur aftur. Allar þessar pillur, allar þessar læknis­heim­sóknir en svo fann ég loks ein­hverja lausn þegar ég var bara í léttum göngu­túr í fal­legri borg.“

Sölvi fór svo í langt frí en þegar hann hóf aftur störf á Fréttastofu Stöðvar 2 byrjuðu einkennin að láta aftur á sér kræla en Sölvi hafði ekki verið lengi við störf þegar hann var rekinn eftir að hafa gefið Stöð 2 fimm ár af lífi sínu. Þá tók við vikulegur þáttur á Skjá einum, Málið, þáttur sem sló í gegn. Þetta var árið 2013. Sölvi gerði þætti um barnaníð, vændi og undirheimana. Í kjölfarið var honum hótað af tveimur hættulegum mönnum af Litla Hrauni.

Ég þorði ekki að sofa í í­búðinni minni í heila viku og fann að nú væri komið gott af öllum þessum þyngslum,“ segir Sölvi og bætir við:

„Ég á­kvað þarna að taka heilsuna miklu fastari tökum og leita eigin lausna, þar sem ég hafði fengið veru­lega lítið úr lang­ferð minni til allra helstu sér­fræði­lækna sem hægt er að nefna. Ég fór að prófa mig á­fram með jóga, hug­leiðslu og köld böð.“

Um þetta leyti fór Sölvi að huga betur að næringu og kafa dýpra í allt sem viðkemur heilsu:

„Ég fór smám saman úr því að kveljast í kvíða yfir öllum mögu­legum og ó­mögu­legum hlutum yfir í það að ganga upp Esjuna á stutt­buxum í janúar­mánuði,“ segir Sölvi og bætir við:

„Grín­laust, þá breytti öll þessi hreyfing og hug­leiðsla lífi mínu. Líkami og hugur eru ná­tengd fyrir­bæri.“

Fyrir ári ákvað Sölvi að leggja snjallsímanum og vinda sér í bókaskrif: „Ég er í bókinni að deila öllu sem ég hef lært.“

Viðtalið í heild má lesa á vef Fréttablaðsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 3 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“