Birgitta Líf Björnsdóttir, markaðsstjóri World Class og áhrifavaldur, hefur lent nokkrum sinnum í því að óprúttnir aðilar noti mynd af henni á stefnumótaforritinu Tinder.
Hún greinir frá þessu í Instagram Story.
„Er btw ekki á neinum svona miðlum. Hef fengið svona sent áður bæði með fake nafni og undir „mínu“ nafni,“ skrifar Birgitta Líf með skjáskoti af Tinder-prófíl sem notar mynd af henni.
Aðilinn segist heita Lilja og vera 22 ára. En eins og Birgitta Líf segir sjálf, þá eru þetta „falsfréttir.“
Birgitta Líf er ein af eftirsóknarverðustu einhleypu konum landsins. Hún var áður framkvæmdastjóri World Class og er nú markaðsstjóri fyrirtækisins. Hún var einnig framkvæmdarstjóri fegurðarsamkeppninnar Ungfrú Ísland. Birgitta Líf er með yfir 19 þúsund fylgjendur á Instagram og er brand ambassador fyrir Nocco, 66° norður, Nike og kampavínið Moët & Chandon.