fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Spennandi hádegisfyrirlestur – Voveiflegur dauðdagi Kristínar Sigurðardóttur

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 29. janúar 2019 08:30

Réttarhöldin vegna dauða Kristínar eru fyrirferðarmikil í dómabók Dalasýslu

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag kl. 12 flytur Þórunn Guðmundsdóttir hádegisfyrirlesturinn „Voveiflegur dauðdagi Kristínar Sigurðardóttur vinnukonu árið 1756. Fyrirlesturinn, sem fer fram á Þjóðminjasafninu, er á vegum Sagnfræðingafélagsins, en þema fyrirlestranna í vor er réttarfar og refsingar.

Í fyrirlestrinum verður fjallað um mál sem er að finna í dómabók Dalasýslu og var höfðað þegar lík Kristínar Sigurðardóttur fannst við Sámsstaðaá sumarið 1756. Þetta sumar hvarf Kristín, ógift og vanfær vinnukona, frá heimili sínu í Laxárdal í Dalasýslu.

Sagnfræðingar og aðrir sem vilja skoða lífsferil einstaklinga á 18. öld út frá því sem skráð er í opinberar samtímaheimildir verða fljótt varir við heimildaskort, sérstaklega hvað varðar fólk sem fæddist um og fyrir miðja 18. öld. Ekkert heildstætt manntal var tekið milli 1703 og 1801 og mikið vantar inn í safn kirkjubóka, það er prestsþjónustubóka og sóknarmannatala, á fyrri hluta 18. aldar og fram til ársins 1784. Óvíst er hvort þær kirkjubækur sem vantar hafi verið skráðar en í skráningum presta í kirkjubækur er að finna samtímaupplýsingar um lífshlaup einstaklinga. Aðrar heimildir þar sem hægt er að nálgast samtímaheimildir um lífshlaup fólks eru dómabækur. Þar er að finna nöfn þeirra sem komust í kast við lögin á þessum tíma, voru aðilar máls eða voru kallaðir fyrir sem vitni, og ýmsar upplýsingar aðrar.

Í fyrirlestrinum verður fjallað um mál sem er að finna í dómabók Dalasýslu og var höfðað þegar lík Kristínar Sigurðardóttur fannst við Sámsstaðaá sumarið 1756. Þetta sumar hvarf Kristín, ógift og vanfær vinnukona, frá heimili sínu í Laxárdal í Dalasýslu. Næsta dag var farið að svipast um eftir henni og fannst hún látin við Sámsstaðaá. Áverkar voru á líkinu og ásigkomulag þess svo undarlegt að ástæða þótti til að rannsaka andlátið frekar. Magnús Ketilsson, sýslumaður Dalamanna, kallaði líkskoðunarmenn á sinn fund og fékk þau svör frá þeim að andlátið hefði ekki borið að með eðlilegum hætti. Magnús hóf þá rannsókn sem stóð með hléum í nokkra mánuði. Konur og karlar sem þekktu þá látnu, aðstæður hennar og lífsferil, voru kölluð til yfirheyrslu og þau sem ekki áttu heimangengt sendu skriflegar upplýsingar. Rannsóknin snerist um að finna þann sem hafði verið valdur að dauða Kristínar en inn í rannsóknina fléttaðist líka leitin að föður þess barns sem Kristín gekk með þegar hún lést. Tæpu ári síðar, vorið 1757, féll svo dómur í málinu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“