fbpx
Mánudagur 09.júní 2025
Fókus

VIÐSKIPTI: H&M situr uppi með föt fyrir 4 milljarða – Of sein að bregðast við aukningu á netinu

Fókus
Föstudaginn 29. júní 2018 14:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verslunarkeðjan H&M situr nú uppi með óseld föt í verslunum sínum um allan heim en upphæð fatnaðarins er metin á 4 milljarða.

Þetta er um þrettán prósent aukning frá síðasta ári en ástæðan er talin sú að sala fyrirtækisins var ekki eins mikil og gert hafði verið ráð fyrir.

Reyndar hefur hagnaður fyrirtækisins dregist saman um tæplega 30 prósent á fyrsta ársfjórðungi þessa árs.

Upplýsingafulltrúar H&M hafa sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að óseldu fötin verið gefin til góðgjörðarmála eða sett í endurvinnslu ef ekki tekst að selja þau.

Sérfræðingar í markaðsmálum vilja meina að þetta sé ekki eina vandamálið sem sænsku risarnir standa frammi fyrir.

Einn helsti vandi fyrirtækisins stafi meðal annars af því að það hafi verið of seint að leggja áherslu á sölu á varningi í gegnum netverslun og því komið í þá stöðu að elta sambærileg fyrirtæki sem hafi verið fyrri til að bregðast við breyttri neysluhegðun kaupenda.

Sífellt fleiri verslanir og fyrirtæki leggja nú áherslu á sölu í gegnum netið en það allra stærsta, Asos, hefur aukið sölu um 145 prósent á milli ára.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Ragnhildur er innflytjandi – „Aldrei fengið yfir sig holskeflu fúkyrða fyrir að hafa ekki aðlagast“

Ragnhildur er innflytjandi – „Aldrei fengið yfir sig holskeflu fúkyrða fyrir að hafa ekki aðlagast“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hrósa hvort öðru á rauða dreglinum – Sögusagnir um ástarsamband fá byr undir báða vængi

Hrósa hvort öðru á rauða dreglinum – Sögusagnir um ástarsamband fá byr undir báða vængi