Pablo Puente segist sjálfur gera tvöföld, eða „double up“ tattú en á húðflúrum hans má gjarna sjá teikningar af einhverskonar togstreitu, eða jafnvægi, milli manns og skepnu. Nú eða konu og skepnu.
Myndasyrpa af flúrum hans komst fyrst á flug á netinu fyrir um tveimur árum en síðan hefur hann öðlast mikla viðurkenningu og virðingu í þessum heimi.
Flúrin hans sýna gjarna fallegar konur og hinar ýmsu skepnur, gjarna úlfa, sem blandast saman svo að úr verður, eins og hann segir sjálfur, afturhvarf manneskjunnar í frumeðlið og hvatirnar svo að fágað yfirborðið hverfur og hrá orkan sem leynist undir niðri skín í gegn.
Fleiri verk eftir Puentes er hægt að skoða á Instagram, (og sumir væru Prince, ef þeir væru dýr).