
Húsnæðismálaráðherra hefur boðað ýmsar breytingar á húsaleigulögum og að ráðist verði í sérstakt kynningarátak og aðgerðir til að upplýsa og fræða aðila á leigumarkaði um réttindi þeirra og skyldur. Telur ráðherra vísbendingar um að leigjendur og leigusalar séu ekki meðvitaðir um rétt sinn og þær réttarbætur sem lagabreytingar undanfarinna ára hafa falið í sér.
Undirrituð tekur undir að leigjendur og leigusalar séu ekki meðvitaðir um réttindi sín og skyldur og þær breytingar sem gerðar hafa verið á lögunum. Telur undirrituð að ástæðuna megi fyrst og fremst rekja til þess að húsaleigulögin sem í upphafi voru frekar skýr og auðlesin séu eftir allar þær breytingar sem gerðar hafa verið á þeim síðustu árin orðin algjört torf og sérlega erfið aflestrar. Hægt sé að einfalda orðalagið í þeim, þó svo reglurnar haldi sér sem breytt hefur verið eða bætt inn í lögin síðustu árin, þannig að almenningur skilji lögin. Það verður hins vegar ekki gert nema með heildarendurskoðun húsaleigulaga.
Húsaleigulögin tóku gildi 1. janúar 1995 og voru frekar einföld og auðskilin. Fá mál bárust fyrstu árin inn á borð kærunefndar húsaleigumála (nú kærunefnd húsamála). Þá var ríkið fyrstu árin með ókeypis símaráðgjöf um húsaleigulögin sem var aflögð þegar ekki var lengur talin þörf fyrir hana. Þá voru ýmis sýnishorn og upplýsingar um lögin settar á heimasíðu félagsmálaráðuneytis.
Húsaleigulögin voru vel samin á sínum tíma og flestir gátu skilið þau sem á annað borð lásu þau. Sú er ekki raunin lengur. Síðustu 10 árin hafa ýmsar breytingar verið gerðar á þeim. Fyrir vikið eru þau orðin ruglingsleg og óaðgengileg fyrir flesta sem þó freista þess að reyna kynna sér þau. Lögin eru óskýr og torveld aflestrar. Þau eru farin að minna á illa saumað og stagbætt bútasaumteppi.
Lög sem þessi þurfa að vera skýr svo almenningur geti lesið þau og skilið. Það er erfitt að leita í þeim og orðalag sumra ákvæða óþarflega flókin og langorð. Einfalda þarf orðalagið, setja reglurnar fram á skýran og skipulagðan hátt og setja fyrirsagnir á lagaákvæðin.
Ég tel því mikilvægt að ráðherra fari í heildarendurskoðun á húsaleigulögum í stað þess bæta sífellt inn í þau og gera þau enn torskildari. Ekki er bætandi á orðagrautinn í þeim.
Höfundur er lögmaður.