fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Eyjan

Þorbjörg segir umræða um setningarathöfn ólympíuleikana afhjúpandi – „Tilvist okkar virðist vera orðin stuðandi í sjálfri sér“

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 1. ágúst 2024 16:30

Þorbjörg nefnir að fyrir 24 árum hafi dragdrottningar á ólympíuleikum ekki vakið upp svona mikil viðbrögð.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, verkefnastjóri og fyrrverandi formaður Samtakanna 78, segir að setningarathöfn ólympíuleikanna í ár sýni að staða hinsegin fólks í opinberri umræðu eigi undir högg að sækja á Vesturlöndum.

Í aðsendri grein á Vísi nefndir Þorbjörg dæmi af ólympíuleikunum í Sydney, árið 2000, þessu til stuðnings.

„Þar mátti meðal annars sjá furðuleg farartæki á hlaupabrautinni, en það voru raunar risavaxnir glitrandi hælaskór á hjólum. Tilefni atriðisins var að heiðra hina stórkostlegu áströlsku kvikmynd The Adventures of Priscilla, Queen of the Desert sem komið hafði út sex árum áður,“ segir Þorbjörg. „Ástæða þess að ég nefni þetta núna, 24 árum síðar, er sú staðreynd að í hverjum rúllandi hælaskó í Sydney stóð dragdrottning. Man einhver eftir því? Líklega eru það fáir, í ljósi þess að engin sérstök umræða fór fram um þetta ágæta atriði.“

Grátkór íhaldsins

Annað er uppi á teningnum núna eins og flestir vita. Það er harkaleg umræða úr ákveðnum ranni um tiltekið atriði setningarathafnarinnar í París þar sem mátti sjá dragdrottningar.

„Vísað var í forn-gríska menningu, Díonýsus kom við sögu og þekktar dragdrottningar voru áberandi. Í kjölfarið upphófst hávær grátkór íhaldssams fólks á Vesturlöndum, meðal annars á Íslandi. Hann varð raunar svo hávær að Ólympíuleikarnir báðust afsökunar á því að einhverjir skyldu hafa móðgast vegna þess að þeir héldu (ranglega) að um vísun í málverk af síðustu kvöldmáltíð Krists væri að ræða,“ segir Þorbjörg. „Það er furðulegt hvað ákveðnum hópi fólks er agalega umhugað um málfrelsi alveg þar til hinsegin fólk fær að njóta þess.“

Tilvistin stuðandi

Nefnir Þorbjörg að hinsegin fólk hafi verið hluti af mannlegu samfélagi frá upphafi.

„Öfgakennd viðbrögð fólks við þessu svokallaða ‘vók’ Ólympíuatriði eru afhjúpandi fyrir stöðu hinsegin fólks í opinberri umræðu á Vesturlöndum þessa dagana,“ segir hún. „Tilvist okkar virðist vera orðin stuðandi í sjálfri sér, sýnileiki okkar er gerður pólitískur og fólkið sem tekur ákvarðanir um að við fáum að sjást biðst síðan afsökunar á því að hafa gert það.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson: Umsögn Landskjörstjórnar með öllu marklaus – Bara spurning um ásetning eða vanþekkingu

Þorsteinn Pálsson: Umsögn Landskjörstjórnar með öllu marklaus – Bara spurning um ásetning eða vanþekkingu
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Snorra nóg boðið – „Skólabókasafnið var allt þakið flennistórum regnbogafánum“

Snorra nóg boðið – „Skólabókasafnið var allt þakið flennistórum regnbogafánum“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Þýðir ekkert að æpa og góla hvert á annað – verðum að koma saman og við gerum það yfirleitt á miðjunni

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Þýðir ekkert að æpa og góla hvert á annað – verðum að koma saman og við gerum það yfirleitt á miðjunni
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar ætlar að kjósa annan flokk í vor

Varaþingmaður Samfylkingarinnar ætlar að kjósa annan flokk í vor
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Trumpisminn í Miðflokknum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Trumpisminn í Miðflokknum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Við erum að tala um valdaframsal þingsins til kjósenda – lýðræði í sinni tærustu mynd

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Við erum að tala um valdaframsal þingsins til kjósenda – lýðræði í sinni tærustu mynd
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Þessi bar er skíðalaust rými

Nína Richter skrifar: Þessi bar er skíðalaust rými
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Nú verður horft á olíufélögin – lækkar bensínið þegar heimsmarkaðsverð hrynur?

Orðið á götunni: Nú verður horft á olíufélögin – lækkar bensínið þegar heimsmarkaðsverð hrynur?