fbpx
Laugardagur 04.maí 2024
Eyjan

Stjórnarþingmaður gagnrýnir kröfur fjármálaráðherra

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 20. febrúar 2024 16:30

Ingibjörg Isaksen og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins gagnrýnir nýlegar þjóðlendukröfur, sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fram fyrir hönd ríkisins, í færslu á Facebook-síðu sinni. Kröfurnar sem meðal annars fela í sér að megnið af Vestmannaeyjum yrði þjóðlenda hafa vakið mikla óánægju sveitarstjórnarfólks og hefur ráðherrann, sem segir eingöngu um lögbundið ferli að ræða sem hún hafi ekki haft mikla aðkomu að, svarað gagnrýninni með þeim hætti að hún ætli sér ekki að sölsa undir sig land:

Sjá einnig: Þórdís Kolbrún segist ekki vera landtökukona

Í færslunni vitnar Ingibjörg í framkomna gagnrýni sveitarstjórnarfólks um að krafan sé gríðarstórt inngrip í mat á eignarrétti og framtíðarsýn fjölmargra íbúa og landeigenda um land allt. Hún segir flestar eyjar sem kröfurnar beinist að séu þinglýstar eignir einstaklinga, sveitarfélaga og annarra aðila og í sumum tilvikum hafi ríkið selt eyjar sem það ætli nú að taka aftur til sín.

Ingibjörg segir að upphaflegur tilgangur með setningu laga um þjóðlendur hafi verið að leysa úr ágreiningi sem ríkt hafði í áratugi um eignarhald á hálendissvæðum landsins eða þeim svæðum sem lengst hafi verið nefnd afréttir og almenningar. Hinar umdeildu kröfur séu langt frá upphaflegum markmiðum laganna og gangi of langt.

„Að mínu mati er nú full langt seilst frá upphaflegum markmiðum laganna. Nú er verið að sækjast eftir landsvæði þar sem nú eru m.a. fasteignir og rúmast innan deiliskipulags sveitarfélaga. Það er eðlilegt að vakin sé athygli á þessu því ljóst er að þetta muni hafa töluverðan kostnað í för með sér fyrir sveitarstjórnir og eigendur þessara landsvæða. Að auki getur krafan skapað mikla óvissu og hamlað mikilvægri uppbyggingu og verðmætasköpun.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Snorri Jakobsson: Seðlabankinn eins og hundur sem eltir skottið á sér

Snorri Jakobsson: Seðlabankinn eins og hundur sem eltir skottið á sér
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Halla Hrund flýgur á toppinn – skjálftavirkni eykst

Orðið á götunni: Halla Hrund flýgur á toppinn – skjálftavirkni eykst
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass
Eyjan
Fyrir 1 viku

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar