fbpx
Þriðjudagur 28.mars 2023
Eyjan

Arnar Már skipaður ferðamálastjóri

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 27. janúar 2023 12:44

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hefur skipað Arnar Má Ólafsson til að gegna embætti ferðamálastjóra. Arnar Már mun taka við embætti ferðamálastjóra hinn 1. mars 2023 en fram að því mun Elías Bj. Gíslason verða starfandi ferðamálastjóri. Skipunin er til fimm ára samkvæmt meginreglu um skipan forstöðumanna ríkisstofnana. 

Umsækjendur um starfið voru 14 en einn umsækjenda dró umsókn sína til baka. Skipuð var hæfnisnefnd sem mat tvo umsækjendur hæfasta til að gegna embætti ferðamálastjóra. Að loknum ráðningarviðtölum ráðherra var það heildstætt mat að Arnar Már Ólafsson stæði öðrum umsækjendum framar, sakir umfangsmeiri reynslu af árangursríkri stjórnun, hagnýtrar og fjölbreyttrar reynslu á sviði ferðamála, yfirgripsmikillar þekkingar og menntunar ásamt skýrrar sýnar á stefnumótandi verkefni Ferðamálastofu.

Skarphéðinn Berg Steinarsson lét af störfum sem ferðamálastjóri síðastliðin áramót.

Arnar Már hefur áratuga rekstrar- og stjórnunarreynslu í ferðaþjónustu og starfaði síðast sem leiðtogi markaðsmála hjá Icelandia. Hann er með meistaragráðu á sviði alþjóðamarkaðs- og ferðamálafræða frá Université de Savoie.

Áður starfaði hann um árabil hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum og Iceland Rovers ásamt því að hafa starfað sem leiðsögumaður í tugi ára. Þá  hefur Arnar starfað sem kennari í ferðamálafræði við Háskóla Íslands, lektor og brautarstjóri ferðamálafræði við Háskólann á Akureyri og forstöðumaður Ferðamálaseturs Íslands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Samiðn handsalar samning við Orkuveitu Reykjavíkur

Samiðn handsalar samning við Orkuveitu Reykjavíkur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ögmundur sakar íslensk stjórnvöld um misnotkun á hælisleitendakerfinu

Ögmundur sakar íslensk stjórnvöld um misnotkun á hælisleitendakerfinu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Vonlaus málstaður stjórnarmeirihlutans

Björn Jón skrifar: Vonlaus málstaður stjórnarmeirihlutans
Eyjan
Fyrir 1 viku

Björn Leví spyr hvað VG og Framsókn fái í sinn hlut fyrir að leyfa Sjálfstæðisflokknum að selja Íslandsbanka og Isavia?

Björn Leví spyr hvað VG og Framsókn fái í sinn hlut fyrir að leyfa Sjálfstæðisflokknum að selja Íslandsbanka og Isavia?
Eyjan
Fyrir 1 viku

„Fólk á það til að missa lífsviljann þegar það ætlar að láta verða af því að byggja“

„Fólk á það til að missa lífsviljann þegar það ætlar að láta verða af því að byggja“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór endurkjörinn formaður VR

Ragnar Þór endurkjörinn formaður VR