fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Eyjan

Íslenskir vísindamenn komnir í úrslit sem uppfinningamenn ársins í Evrópu 2023

Eyjan
Þriðjudaginn 9. maí 2023 17:25

Þorsteinn Loftsson og Einar Stefánsson voru valdir í þriggja manna úrslit úr hópi 600 vísindamanna. Mynd aðsend.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorsteinn Loftsson og Einar Stefánsson, prófessorar emeritus við HÍ, eru komnir í úrslit Evrópsku uppfinningaverðlaunanna 2023 en þau veitir Evrópska einkaleyfastofan ár hvert. Þeir voru valdir úr hópi 600 uppfinningamanna sem voru tilnefndir í ár og eru fyrstu Íslendingarnir sem komast í úrslit.

Uppfinning Þorsteins og Einars gerir kleift að nota augndropa til meðhöndlunar á sjúkdómum í sjónhimnu, til dæmis sjónhimnubjúg í sykursýki. Með tækninni má flytja lyf í formi augndropa í afturhluta augans í stað þess að nota sprautunálar.

Í frétt á heimasíðu Háskóla Íslands segir að alþjóðasamtök sykursjúkra telji að tæplega 40 milljón manns í heiminum þjáist af sjónhimnubjúg í sykursýki sem sé ein helsta orsökum blindu. Sjónhimnubjúgur og fleiri sjónhimnusjúkdómar hafa hingað til verið meðhöndlaðir með því að sprauta lyfjum inn í augað.

Þeir félagar þróuðu nýja tækni sem gerir kleift að flytja lyf til afturhluta augans í formi augndropa. Sjúklingum mun því bjóðast meðferð með augndropum sem valkostur við það að sprauta lyfjum inn í augað. Það gerir meðferðina þægilegri og aðgengilegri bæði fyrir sjúklinga í ríkum löndum en ekki síst í þróunarlöndum þar sem aðgengi að heilbrigðisþjónustu er lakara. Fyrir þessa uppfinningu eru Þorsteinn og Einar komnir í úrslit sem uppfinningamenn Evrópu í flokknum „Rannsóknir“. Þeir voru valdir úr hópi 600 uppfinningamanna sem voru tilnefndir í ár.

Bætt aðgengi að meðferð

Einar og Þorsteinn vonast til að þessi nýja tækni umbylti lyfjameðferð við sjónhimnusjúkdómnum sem eru meðal helstu orsaka blindu. Aðgengi að lyfjameðferð takmarkast við aðstöðu og mannafla til sprauta lyfjum inn í auga eða setja lyfjahylki inn í auga. Meðferð með augndropum bætir aðgengið bæði í ríkum löndum og þróunarlöndum þar sem fjöldi sykursjúkra er mikill og heilbrigðisþjónusta takmörkuð. Tæknin nýtist einnig til að bæta lyfjameðferð í framhluta auga.

Þorsteinn er bjartsýnn á möguleika uppfinningarinnar: „Hægt er að meðhöndla sjúklinga tafarlaust og í heimabyggð og með þessari tækni býðst sjúklingum valkostur við sprautunálar. Meðferðin verður aðgengilegri fyrir fjölda sjúklinga um allan heim.“

Að takast á við hið ómögulega

Þorsteinn starfaði í áratugi sem prófessor við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands og aðra háskóla fram til ársins 2020. Hann var, ásamt Einari Stefánssyni, einn stofnenda fyrirtækisins Oculis árið 2016. Einar er prófessor emeritus við Háskóla Íslands og hefur verið yfirlæknir á augndeild Landspítala frá árinu 1989. Einar undirstrikar afrek þeirra félaga með eftirfarandi orðum: „Nokkrir starfsfélaga okkar, sem eru helstu áhrifamenn á þessu sviði, töldu lengst af að augnlyfjagjöf til bakhluta augans væri fræðilega ómöguleg. Uppfinning okkar Þorsteins afsannaði þessa kennisetningu.“ Nýlegar klínískar rannsóknir hafa sýnt fram á notagildi þessarar nýju tækni.

Þeir félagar eru meðal þriggja sem komnir eru í úrslit í flokknum „Rannsóknir“ sem uppfinningamenn ársins 2023 í Evrópu en viðurkenningin er veitt framúrskarandi frumkvöðlum fyrir uppfinningar sem hafa hlotið einkaleyfi í Evrópu. Tilkynnt verður um verðlaunahafa og fleiri verðlauna Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO) árið 2023 á verðlaunaafhendingu 4. júlí 2023 í Valencia (á Spáni). Verðlaunaafhendingin verður send út á netinu og er opin almenningi.

Samhliða afhendingu verðlauna í hverjum flokki verða veitt vinsældaverðlaun þar sem almenningi gefst kostur á að kjósa þá hugmynd sem þeim líst best á. Hægt er að kjósa Einar og Þorstein hér. 

Hægt er að finna frekari upplýsingar um áhrif uppfinningarinnar, tækninnar og sögu uppfinningarmannanna hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að