fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Eyjan

Alþingi kolefnisjafnar ekki utanlandsferðir og fjarfundabúnaður vannýttur – Stefnir í metár flugferða

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 25. október 2019 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kolefnisfótspor Alþingis á tímum hamfarahlýnunar er þónokkuð. Skrifstofa Alþingis kolefnisjafnar ekki flugferðir starfsmanna sinna né þingmanna. Útlit er fyrir að ferðir hjá starfsmönnum í yfirstjórn skrifstofu Alþingis verði fleiri á þessu ári einu, en allar ferðir síðustu þriggja ára, en þegar hafa 17 ferðir verið farnar og eru 15 til viðbótar áætlaðar til áramóta.

Hjá almennum starfsmönnum Alþingis stefnir í að farnar verði 58 vinnutengdar utanlandsferðir. Þetta kemur í ljós í svari við fyrirspurn Þorsteins Sæmundssonar, þingmanns Miðflokksins, til forseta Alþingis og RÚV greinir frá. Hefur Þorsteinn einnig sent slíkar fyrirspurnir til allra ráðherra ríkisstjórnarinnar, en svör hafa ekki borist þaðan ennþá.

Þess ber að geta að þingmönnum og starfsmönnum Alþingis er í sjálfsvald sett hvort þeir kolefnisjafni ferðir sínar, en það er ekki gert af skrifstofu Alþingis.

Fjarfundir ekki skráðir

Í fyrirspurn Þorsteins er einnig athugað hvort fjarfundarbúnaður sé til á Alþingi og hversu margir fundir voru haldnir með slíkum búnaði milli áranna 2016-2019.

Í svarinu kemur fram að slíkur búnaður hafi verið endurnýjaður fyrr á árinu, en ekki hafi fjarfundir verið skráðir sérstaklega í gegnum tíðina. Búnaðurinn er notaður fyrir starfsmannaviðtöl ef viðkomandi er staddur erlendis, en að öðru leyti er notkunin stopul samkvæmt svarinu:

„Hvað þingmenn varðar þá hafa tvær nefndir haldið hvor sinn fjarfundinn á þessu tímabili með aðilum í útlöndum og þrjár nefndir hafa haldið símafundi með aðilum erlendis. Skrifstofan heldur ekki utan um fjarfundi þingflokka eða einstakra þingmanna.“

Ekki fylgir sögunni hvort Alþingi hyggist fækka ferðalögum sínum og nota fjarfundabúnað sinn í meiri mæli, og hlífa þannig náttúrunni og skattborgurum við frekara tjóni og kostnaði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Vælandi út af öllu – verður Guðrúnu ýtt út á næsta landsfundi?

Orðið á götunni: Vælandi út af öllu – verður Guðrúnu ýtt út á næsta landsfundi?
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson: Umsögn Landskjörstjórnar með öllu marklaus – Bara spurning um ásetning eða vanþekkingu

Þorsteinn Pálsson: Umsögn Landskjörstjórnar með öllu marklaus – Bara spurning um ásetning eða vanþekkingu
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Opna dyrnar eða loka þeim?

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Opna dyrnar eða loka þeim?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Þýðir ekkert að æpa og góla hvert á annað – verðum að koma saman og við gerum það yfirleitt á miðjunni

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Þýðir ekkert að æpa og góla hvert á annað – verðum að koma saman og við gerum það yfirleitt á miðjunni