fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Eyjan

Fá styrk til rannsókna á áhrifum hryðjuverkaógnar

Trausti Salvar Kristjánsson
Mánudaginn 26. mars 2018 10:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðbjörg Andrea Jónsdóttir

Þrír fræðimenn við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands og norrænir samstarfsfélagar þeirra hafa fengið rúmlega 120 milljóna króna styrk frá Nordforsk til að rannsaka áhrif hryðjuverkaógnar á borgara og einnig áhrif lagasetningar gegn hryðjuverkum á viðhorf fólks til lýðræðis og trausts á stjórnvöldum.

Nordforsk er  norræn stofnun sem starfar á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar og hefur umsjón með og styrkir rannsóknasamtarf á Norðurlöndum.  Stofnunin úthlutaði á dögunum þremur styrkjum til rannsókna sem tengjast örygg samfélaga á Norðurlöndum undir áætluninni The Underpinnings of Nordic Societal Security. Alls bárust 17 umsóknir um styrki úr áætluninni en rannsóknarverkefnin þrjú sem fengu styrk að þessu sinni fá hvert um sig 9,5 milljónir norskra króna, jafnvirði um 124 milljóna íslenskra króna.

Eitt þeirra þriggja verkefna sem hljóta styrk er „Hryðjuverkaógn á Norðurlöndunum: Áhrif á borgara, lagasetningar og lögmæti (The Challenge from Terrorism in the Nordic Countries: An analysis of citizens’ reactions, policy responses and legitimacy)“. Meðal aðstandenda þess eru þau Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar, Hulda Þórisdóttir, dósent í stjórnmálafræði, og Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði. Verkefnið lýtur forystu Dag Arne Christensen frá UNI Research AS í Noregi en auk þeirra koma fræðimenn Háskólanum í Bergen og Gautaborgarháskóla að verkefninu.

Lýðræðisríkjum, þar á meðal norrænu ríkjunum, stendur mikil ógn af hryðjuverkum sem skapa þrýsting á lýðræðislega kjörin stjórnvöld. Eitt af mikilvægustu verkefnum þeirra er að tryggja öryggi borgaranna. Ef borgarar upplifa óöryggi og að lögum og reglum sé ekki framfylgt getur það grafið undan trausti á stjórnvöldum. Aðgerðir til að tryggja öryggi borgara geta þó einnig grafið undan grunnstoðum lýðræðisins. Harðar aðgerðir eins og húsleitir án heimilda, handtökur, símahleranir og langt gæsluvarðhald án dómsúrskurðar geta legið beint við til að tryggja öryggi borgaranna en um leið eru þær í andstöðu við borgaraleg réttindi. Mikil togstreita getur því skapast á milli öryggissjónarmiða og frelsissjónarmiða í ríkjum sem byggja á lýðræðisgildum.

Meginrannsóknarspurning verkefnisins er hversu vel lýðræðisríki geti staðið af sér þá ógn sem þau standa frammi fyrir vegna hryðjuverka. Í verkefninu verður leitast við að svara henni með greiningu fyrirliggjandi gagna úr fjölþjóðlegum spurningakönnunum og söfnun nýrra gagna í þremur rannsóknarverkefnum sem hafa eftirfarandi þemu: 1) Hefur óttinn við hryðjuverk það mikil áhrif á borgara að þeir séu tilbúnir til að fórna borgaralegum réttindum?; 2) Hversu mikil áhrif hafa lagasetningar gegn hryðjuverkum á viðhorf fólks til lýðræðis og traust þess á stjórnvöldum og lögmæti þeirra?; 3) Hver eru tengsl mismunandi stjórnskipulags og ótta borgara við hryðjuverk?

Af heildarstyrknum til verkefnisins koma 32,5 milljónir króna í hlut Háskóla Íslands.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar Michael Jackson fór í klippingu

Nína Richter skrifar: Þegar Michael Jackson fór í klippingu
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þórdís kölluð svikari – „Það sem áður var aðalsmerki orðið að svikamerki“

Þórdís kölluð svikari – „Það sem áður var aðalsmerki orðið að svikamerki“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Viðreisn kynnir áherslur sínar í Reykjavík: „Þessu ætlum við að snúa við“

Viðreisn kynnir áherslur sínar í Reykjavík: „Þessu ætlum við að snúa við“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Eyjólfur Ármannsson: Forgangsröðunin í gangagerð er skynsamleg og tekur á bráðum vanda

Eyjólfur Ármannsson: Forgangsröðunin í gangagerð er skynsamleg og tekur á bráðum vanda
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Forysta kennara eins og LÍÚ – vilja ráða öllu og allir aðrir eru óupplýstir bjálfar

Orðið á götunni: Forysta kennara eins og LÍÚ – vilja ráða öllu og allir aðrir eru óupplýstir bjálfar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Eyjólfur Ármannsson: Kvótakerfið á að vernda stofna og stuðla að hagræðingu – líka tryggja byggð og atvinnu

Eyjólfur Ármannsson: Kvótakerfið á að vernda stofna og stuðla að hagræðingu – líka tryggja byggð og atvinnu