Kosning utan kjörfundar erlendis vegna sveitastjórnarkosninga 26. maí 2018 er hafin.
Kjörstaðir eru allar sendiskrifstofur Íslands (nema Fastanefnd hjá NATO í Brussel), aðalræðisskrifstofur í New York, Winnipeg, Þórshöfn og Nuuk ásamt skrifstofum 215 kjörræðismanna víða um heim.
Sendiskrifstofur Íslands erlendis eru að jafnaði opnar kjósendum á venjulegum opnunartíma og í einstökum tilvikum utan hans. Nánari upplýsingar um opnunartíma er að finna á vef viðkomandi sendiráðs.
Kjósendur skulu hafa samband við kjörræðismenn og bóka tíma eftir samkomulagi til að kjósa. Staðsetningar sendiskrifstofa og ræðismanna eru á vef ráðuneytisins.
Allir íslenskir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili erlendis skemur en 8 ár (talið frá 1. desember árið áður en kosningar eru haldnar) eru sjálfkrafa með kosningarétt á Íslandi. Þeir þurfa að vera orðnir 18 ára á kjördag og hafa einhvern tíma átt lögheimili á Íslandi.
Þeir Íslendingar sem hafa búið erlendis lengur en frá 1. desember 2008 og ekki eru á kjörskrá þurfa að sækja sérstaklega um að þeir verði teknir á kjörskrá. Eyðublað vegna þessa má nálgast á vef Þjóðskrár.
Kjósendur erlendis bera sjálfir ábyrgð á því að koma atkvæðum sínum til skila á Íslandi. Atkvæði þarf að berast til sýslumanns eða kjörstjórnar í sveitarfélagi kjósanda fyrir kjördag.
Eftir að kjósandi hefur greitt atkvæði hjá kjörstjóra er atkvæðið sett í kjörseðilsumslag og það límt aftur. Kjörseðilsumslagið og útfyllt fylgibréf er því næst sett í sendiumslag ætlað viðkomandi sýslumanni eða kjörstjórn (á skrifstofu hlutaðeigandi sveitarfélags) og lokað fyrir. Á bakhlið þess eru upplýsingar um kjósanda sem hann verður að fylla út svo atkvæðið rati á réttan stað. Vilji kjósandi ekki að nafn hans, kennitala og lögheimili á Íslandi sé sýnilegt öðrum er honum heimilt að setja þetta umslag ofan í annað og merkja það viðkomandi sýslumanni eða kjörstjórn. Hægt er að senda utankjörfundaratkvæði með pósti eða koma því á einhvern annan hátt í hendur hlutaðeigandi kjörstjórnar.
Staðsetningar sýslumanna
Uppfletting í kjörskrá (er nær dregur kosningum)
Á vefnum kosning.is er birt upplýsingaefni bæði á íslensku og ensku.