fbpx
Föstudagur 17.maí 2024
Eyjan

Halldóra Lóa leiðir VG í Borgarbyggð

Trausti Salvar Kristjánsson
Þriðjudaginn 3. apríl 2018 23:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frá vinstri: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, Eiríkur Þór Theódórsson.

Framboðslisti Vinstri grænna í Borgarbyggð var samþykktur á félagsfundi fyrr í kvöld vegna sveitarstjórnarkosninganna 26. maí nk. Listann leiðir Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, bóndi og náms- og starfsráðgjafi, en hún hefur gengt fjölda trúnaðarstarfa fyrir VG í gegnum tíðina og á kjörtímabilinu sem er að líða hefur hún verið fulltrúi í fræðslunefnd Borgarbyggðar.

Í öðru sæti er Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, sviðsstjóri auðlindasviðs Skógræktarinnar og sveitarstjórnarfulltrúi, en hún var einnig í öðru sæti í síðustu kosningum. Nýr í þriðja sæti er Eiríkur Þór Theódórsson, móttöku- og sýningastjóri, en hann tekur þátt á listanum sem óháður frambjóðandi. Eiríkur hefur í gegnum tíðina gegnt ýmsum ábyrgðarhlutverkum í félagsstörfum, og er m.a. varaformaður ungliðahreyfingar ASÍ og meðstjórnandi í stjórn Stéttarfélags Vesturlands.

V-listinn í Borgarbyggð í heild sinni:

  1. Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir. 36 ára. Bóndi og náms- og starfsráðgjafi. Reykholti
  2. Sigríður Júlía Brynleifsdóttir. 44 ára. Sviðsstjóri auðlindasviðs Skógræktarinnar. Borgarnesi
  3. Eiríkur Þór Theódórsson. 28 ára. Móttöku- og sýningastjóri. Hvanneyri
  4. Friðrik Aspelund. 55 ára.Skógfræðingur og leiðsögumaður. Hvanneyri
  5. Brynja Þorsteinsdóttir. 39 ára. Leiðbeinandi á leikskóla. Borgarnesi
  6. Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir. 31 árs.Líffræðingur og kennari. Kleppjárnsreykjum
  7. Stefán Ingi Ólafsson. 39 ára.Rafvirki og veiðimaður. Borgarnesi
  8. Ása Erlingsdóttir. 47 ára.Grunnskólakennari. Laufskálum 2
  9. Rúnar Gíslason. 21 árs. Lögreglumaður. Borgarnesi
  10. Unnur Jónsdóttir. 30 ára.Íþróttafræðingur. Lundi
  11. Flemming Jessen. 71 árs. Fv. skólastjóri. Hvanneyri
  12. Eyrún Baldursdótir. 24 ára. Hjúkrunarfræðinemi. Borgarnesi
  13. Sigurður Helgason. 77 ára. Eldri borgari og fv. bóndi. Hraunholti
  14. Hildur Traustadóttir. 63 ára. Framkvæmdastjóri. Hvanneyri
  15. Kristberg Jónsson. 60 ára. Fyrrverandi verslunarmaður.Litla-Holti
  16. Bjarki Þór Grönfeldt Gunnarsson. 23 ára. Sálfræðinemi. Brekku
  17. Vigdís Kristjánsdóttir. 84 ára. Eftirlaunaþegi. Borgarnesi
  18. Guðbrandur Brynjúlfsson. 69 ára.Bóndi. Brúarlandi
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Áhugafólk um okur á Íslandi

Sigmundur Ernir skrifar: Áhugafólk um okur á Íslandi
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Dagur hlessa á Guðlaugi Þór – Hafi nú tekið skoðun Dags upp á sína arma sem hann hafi skammast yfir lengi

Dagur hlessa á Guðlaugi Þór – Hafi nú tekið skoðun Dags upp á sína arma sem hann hafi skammast yfir lengi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Steinunn Ólína – ríkisstjórnin er eins og plastpokamaður

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Steinunn Ólína – ríkisstjórnin er eins og plastpokamaður
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Sigurður skrifar: Ung, gröð og rík í flutningi Svedda tannar

Jón Sigurður skrifar: Ung, gröð og rík í flutningi Svedda tannar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reitir kynna áform um uppbyggingu á Kringlusvæði

Reitir kynna áform um uppbyggingu á Kringlusvæði
Eyjan
Fyrir 1 viku

Um 25 þúsund gestir heimsóttu Verk og vit

Um 25 þúsund gestir heimsóttu Verk og vit