fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
Eyjan

Sönnunarbyrðin hvílir á bannvaldinu og öllum hinum sem þegja!

Ari Brynjólfsson
Þriðjudaginn 17. október 2017 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ögmundur Jónasson fyrrverandi dómsmálaráðherra.

Ögmundur Jónasson skrifar:

Lögbann hefur verið sett á Stundina og sömu tilburðir munu vera uppi gagnvart Guardian líka, eftir því sem fréttir herma, til að koma í veg fyrir að okkur berist upplýsingar um siðleysi í fjármálaheiminum sem í þokkabót kunni sumar hverjar að tengjast stjórnmálum.

Frá Möltu berast fréttir af því að blaðakona hafi verið myrt fyrir að beita sér fyrir upplýsingum um Panamaskjölin, en það eru upplýsingar á borð við þær sem nú er reynt að banna á Íslandi.

Við þessu er bara eitt orð. Það er orðið NEI!

Vonandi verða snör handtökin hjá Hæstarétti að hnekkja þessari lögbannsákvörðun.

Málið er grafalvarlegt. Þær upplýsingar um fjármál einstaklinga og fyrirtækja eru ekki til sem verðskulda lögbann! Sannfæri mig einhver um að svo sé.

Sönnunarbyrðin hvílir á bannvaldinu – og síðan að sjálfsögðu öllum hinum sem þegja eða tala um þetta í hálfum hljóðum eins og mér sýnist ýmsir fjölmiðlar gera!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Flýr Ásdís Kristjánsdóttir Kópavog eins og Rósa Guðbjartsdóttir flúði úr bæjarstjórn Hafnarfjarðar?

Orðið á götunni: Flýr Ásdís Kristjánsdóttir Kópavog eins og Rósa Guðbjartsdóttir flúði úr bæjarstjórn Hafnarfjarðar?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ragnar Þór Ingólfsson: Grímulaus sérhagsmunagæsla stjórnarandstöðunnar – trúnaðarupplýsingum deilt með hagsmunaaðilum

Ragnar Þór Ingólfsson: Grímulaus sérhagsmunagæsla stjórnarandstöðunnar – trúnaðarupplýsingum deilt með hagsmunaaðilum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Spyr hvers vegna SA og Viðskiptaráð hafi kúvent – „Ekki vegna heildarhagsmuna atvinnulífsins í landinu“

Spyr hvers vegna SA og Viðskiptaráð hafi kúvent – „Ekki vegna heildarhagsmuna atvinnulífsins í landinu“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Orsök kúvendingar í Húsi atvinnulífsins

Þorsteinn Pálsson skrifar: Orsök kúvendingar í Húsi atvinnulífsins