fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Eimskip undirritar samning um smíði á tveimur nýjum gámaskipum í Kína: Samstarf við Royal Arctic Line

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 25. janúar 2017 10:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

thumbnail_2016-10-26_EimskipAndRALGroupAtSeaEimskip hefur átt í samningaviðræðum við skipasmíðastöðvar í Kína í tengslum við smíði á tveimur 2.150 gámaeininga skipum. Félagið hefur nú undirritað samning við China Shipbuilding Trading Company Limited og Guangzhou Wenchong Shipyard Co. Ltd. Samningsverð hvors skips nemur um 32 milljónum dollara og gert er ráð fyrir að skipin verði afhent á árinu 2019. Samningurinn er með fyrirvara um fjármögnun, en Eimskip vinnur að því að tryggja fjármögnun skipanna. Royal Arctic Line hefur einnig undirritað samning við sömu skipasmíðastöð um smíði á einu sambærilegu skipi.

Frá þessu er greint í tilkynningu Eimskips til Kauphallar Íslands. Skipin munu verða með ísklassa og hönnuð með tilliti til skilyrða „Polar Code“. Heildarlengd þeirra verður 180 metrar, breidd 31 metri og þau verða með TIER III vél sem er sérstaklega útbúin til að draga úr útblæstri köfnunarefnis (NOx) út í andrúmsloftið. Skipin munu auka afkastagetu og áreiðanleika þjónustunnar þar sem þau eru stærri en núverandi skip á markaðssvæðinu og vel búin til siglinga á Norður-Atlantshafi. Þau verða sparneytnari á hverja gámaeiningu samanborið við eldri skip og verða umhverfisvænni vegna innbyggðs olíuhreinsibúnaðar sem lágmarkar brennisteinsútblástur (SOx) út í andrúmsloftið. Stærri og hagkvæmari skip munu leiða til lægri rekstrarkostnaðar á gámaeiningu.

Eimskip og Royal Arctic Line hafa unnið að því að ramma inn fyrirhugað samstarf um samnýtingu á afkastagetu. Félögin hafa nú undirritað samkomulag um samstarf, en það bíður þess að vera kynnt fyrir og staðfest af viðeigandi samkeppnisyfirvöldum ef við á.

„Það er ánægjulegt að gengið hafi verið frá samningi um smíði nýju skipanna. Þetta er mikilvægt skref í endurnýjun og þróun á skipaflota Eimskips. Við höfum einnig náð samkomulagi við Royal Arctic Line sem byggir á okkar langvarandi tengslum og samstarfi allt frá árinu 1993. Þróun hafnarsvæða í Nuuk, Reykjavík og Þórshöfn munu gefa færi á notkun stærri skipa á markaðssvæði okkar. Við gerum einnig ráð fyrir að samstarfið auki viðskipti á milli þjóðanna á norðurslóðum, sérstaklega þau takmörkuðu viðskipti sem verið hafa á milli Íslands og Grænlands þar sem beinar siglingar og tíðni ferða hefur verið ábótavant,“ segir Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskips.

Royal Arctic Line A/S var stofnað árið 1993 og er að fullu í eigu grænlensku landssjórnarinnar. Landsstjórnin hefur veitt Royal Arctic Line A/S sérleyfi til að annast vöruflutninga á sjó til og frá Grænlandi ásamt flutningum á landi. Þetta hefur gert félagið að fjöreggi grænlensks samfélags. Royal Arctic Line annast einnig rekstur 13 hafna á Grænlandi. Eimskip hefur verið umboðsaðili Royal Arctic Line á Íslandi frá árinu 1993. Samstarfið var aukið á árinu 2016 með því að TVG-Zimsen, dótturfélagi Eimskips, var falið að annast flutningsmiðlun á flugi og akstri fyrir Royal Arctic Line í Evrópu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki