

Þingflokkur Pírata hefur lagt fram frumvarp um breytingar á lögum um kjararáð, vilja Píratar að kjararáð kveði upp nýjan úrskurð sem feli í sér launalækkun Alþingismanna og ráðherra sem samsvari því að laun þeirra fylgi almennri launaþróun frá 11. júní 2013.
Í fréttatilkynningu sem Píratar sendu frá sér fyrir stuttu bjóða þeir öðrum þingmönnum að vera með í málinu. Vísað er til orða Gylfa Arnbjörnssonar forseta Alþýðusambandsins frá því í morgun um að forsendur kjarasamninga Samtaka atvinnulífsins og ASÍ séu í hættu vegna ákvörðunar kjararáðs að hækka laun þingmanna og ráðherra. Eftir viku lýkur mati á forsendum þess að segja upp kjarasamningum ASÍ og SA.
Alþingi hefur 7 daga til að bregðast við með góðu fordæmi og fyrirskipa kjararáði að lækka laun þingmanna, ráðherra og annarra sem heyra undir ráðið til samræmis við launaþróun frá 2013 sem kjarasamningar flestra launþega miða við. Þetta frumvarp gerir það,
segir í fréttatilkynningu Pírata. Samkvæmt frumvarpinu verður Kjararáði gert samkvæmt lögum að kveða upp nýjan úrskurð fyrir 28. febrúar, í næstu viku, sem feli í sér launalækkun þingmanna og ráðherra, en ekki forseta Íslands.