fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Fréttir

Ánægður með að Diljá Mist tapaði

Ritstjórn DV
Mánudaginn 3. mars 2025 17:30

Diljá Mist Einarsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjarni Snæbjörnsson leikari, rithöfundur og hlaðvarpsstjórnandi lýsir yfir mikilli ánægju með að Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins hafi beðið lægri hlut í kosningu um embætti varaformanns á landsfundi flokksins um helgina. Bjarni segist hafa hlustað á framboðsræðu Diljár vegna fréttar sem hann sá þar sem fjallað var um ræðuna. Segist Bjarni vart hafa átt orð yfir augljósri vanþekkingu Diljár og að hún sé að halda á lofti sams konar sjónarmiðum og afturhaldsöfl í Bandaríkjunum.

Bjarni gerir þetta að umtalsefni í grein á Vísi.

Hann segist lítinn gaum hafa gefið að Diljá allt þar til hann rak augun í frétt af ræðu hennar þar sem vitnað var til þeirra orða varaformannsframbjóðandans að „woke-ið væri búið.“

Woke er hugtak sem illa hefur gengið að þýða á íslensku en hægrimenn hérlendis hafa mikið gert úr þessu hugtaki og sagt það hluta af offorsi vinstrimanna í ýmsum málum er snúa til að mynda að réttindum minnihlutahópa, kvenna og ýmissa annarra þjóðfélagshópa.

Bjarni segist gersamlega forviða yfir því að Diljá Mist tali með þessum hætti þar sem hún geri sér augljóslega enga grein fyrir að sjálf eigi hún „woke mikið að þakka.“

Samkennd

Bjarni leggur sjálfur eftirfarandi skilning í hugtakið:

„Talið er að uppruni orðsins „woke“ eigi sér rætur að rekja til réttindabaráttu svartra í Bandaríkjunum í upphafi síðustu aldar. Í dag er merkingin sú að woke-manneskja sé upplýst og meðvituð um félagslegt óréttlæti og kynþáttamisrétti. Að vera „woke“ þýðir því einfaldlega að láta sér annt um velferð annarra, með öðrum orðum að hafa samkennd með þeim sem minna mega sín í samfélaginu.“

Bjarni vitnar áfram í orð Diljár:

„Í ræðu sinni talaði Diljá einnig um hvernig hún heyrði á fundum um allt land með fólki úr Sjálfstæðisflokknum hvort „væri ekki komið nóg af öllum þessum konum, hvar myndi þetta enda?“ og að hún hafi þá svarað að „í flokknum er fólk metið út frá verðleikum, ekki út frá kyni eða einhverju öðru.“ Hún hlaut lófaklapp fyrir vikið.“

Lygin

Bjarni segir Diljá hafa sagt að heimur þar sem allt sé lygi og fólk fái ekki tækifæri á grunni verðleika sinna væri á enda, en sjálf hafi hún verið að hagræða sannleikanum. Diljá sem kona eigi woke mikið að þakka:

„Staðhæfingar Diljár halda engu vatni. Lof mér að tala hreina íslensku; Ef ekki væri fyrir woke-fólk byggju konur við mun meira félagslegt og lagalegt óréttlæti. Ef woke-ið væri búið fengju konur færri tækifæri því fólk væri metið út frá kyni eða einhverju öðru. Ef woke-ið væri búið fengi jaðarsett fólk enn færri tækifæri, óháð verðleikum sínum. Það er woke-fólki að þakka að enn er barist fyrir jöfnum rétti allra hópa í íslensku samfélagi. Ef ekki væri fyrir woke-fólk væri ekki möguleiki fyrir Diljá, sem konu, að bjóða sig fram í varaformann stjórnmálaflokks.“

Segist Bjarni að með orðræðu eins og þeirri sem Diljá hafi viðhaft sé lygum haldið á lofti og hann voni innilega að Diljá og Sjálfstæðisflokkurinn séu ekki í auknum mæli að snúa sér til fylgis við hugmyndir bandarískra íhaldsmanna um að skerða réttindi minnihlutahópa.

Grein Bjarna í heild sinni er hægt að lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni