fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fókus

„Sýndu Kraft með prjóni“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 10. febrúar 2025 17:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú er síðasti liður vitundarvakningar Krafts stuðningsfélags farinn í loftið þar sem prjónarar um allt land eru hvattir til að sýna kraft í verki með því að prjóna ullarsokka fyrir ungt fólk sem greinist með krabbamein, en á hverju ári greinast um 70 ungir einstaklingar með krabbamein.

Sokkarnir fara í gjafapoka sem Kraftur gefur öllum þeim sem greinast með krabbamein á aldrinum 18–40 ára. Gjafapokinn inniheldur allskyns nytsamlegar vörur og fræðslu fyrir það verkefni sem nýgreindur einstaklingur stendur frammi fyrir. Gjafapokann fær fólk afhentan á krabbameinsdeildunum þegar það mætir í meðferð eða í fræðsluviðtal til hjúkrunarfræðings.

„Gjafapokinn er oft fyrsta snerting okkar hjá Krafti við félagsmenn og tölum við oft um að með gjafapokanum bjóðum við fólk velkomið í klúbbinn sem enginn vill vera í“, segir Þórunn Hilda Jónasdóttir, viðburða- og þjónustustjóri Krafts.

Uppskriftin af sokkunum sækir innblástur í hönnun listakonunnar Tótu Van Helzing, eins og fjáröflunarvara Krafts 2025, Lífið er núna-húfan. Tóta var félagsmaður hjá Krafti en hún greindist með illvígt krabbamein í byrjun árs 2021 þá nýorðin 31 árs gömul og lést í desember sama ár.

„Þetta er í annað skiptið sem við hjá Krafti förum í prjónaverkefni sem þetta, en síðast var það árið 2020. Þá höfðum við hreinlega ekki undan því að taka á móti sokkum, sem var algjörlega frábært en nú er sá lager að klárast hjá okkur. Því var tilvalið að fara núna aftur af stað með verkefnið tengt vitundarvakningunni og sækja innblástur í hönnun Tótu Van Helzing. Það er einlæg von okkar að prjónarar um allt land verði jafn til í þetta verkefni með okkur nú og áður“, segir Þórunn.

Uppskriftina af sokkunum má finna á kraftur.org og er hlaðið niður ókeypis.

Einfalt að skila sokkunum þökk sé N1 og Dropp
Til að koma tilbúnum sokkum til Krafts, geta prjónarar skilað sokkunum á næstu N1 stöð um allt land og sjá N1 og Dropp um að koma sokkunum til Krafts.

Starfsfólk hjá Krafti kemur sokkunum svo til þeirra sem á þurfa að halda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Eva Laufey skellti sér á uppistand ári á undan áætlun

Eva Laufey skellti sér á uppistand ári á undan áætlun
Fókus
Fyrir 2 dögum

Uppnám í Ungfrú Ísland: „Get ekki lengur setið undir þessari framkomu“

Uppnám í Ungfrú Ísland: „Get ekki lengur setið undir þessari framkomu“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram – Ældi á miðjum tónleikum og nú mega jólin koma

Vikan á Instagram – Ældi á miðjum tónleikum og nú mega jólin koma
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ólöf óttast um dóttur sína: „Ég byrjaði að kalla á hjálp strax þegar hún var sjö ára en það vildi enginn hlusta á mig eða trúa mér“

Ólöf óttast um dóttur sína: „Ég byrjaði að kalla á hjálp strax þegar hún var sjö ára en það vildi enginn hlusta á mig eða trúa mér“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Var Michael Jackson hafður fyrir rangri sök?

Var Michael Jackson hafður fyrir rangri sök?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Bókaspjall: Klisjufrítt svæði, hlaðið húmor

Bókaspjall: Klisjufrítt svæði, hlaðið húmor
Fókus
Fyrir 6 dögum

Djúpt snort­in yfir því að ís­lenska þjóð­in tók þátt í leit­inni

Djúpt snort­in yfir því að ís­lenska þjóð­in tók þátt í leit­inni
Fókus
Fyrir 1 viku

Ragnhildur segir betra að gera þetta en vera meganæs

Ragnhildur segir betra að gera þetta en vera meganæs