
Eyjan heitir Marion Island og er um 2.000 km suðaustan við Höfðaborg. Mýs fara þar mikinn og éta meðal annars egg fugla en margar mikilvægar fuglategundir halda til á eyjunni. Þetta gengur svo langt að mýsnar éta einnig fugla lifandi.
Mark Anderson, maðurinn á bak við verkefnið „The Mouse-Free Marion Project“ ræddi málið á fundi BirdLife South Africa samtakanna á laugardaginn en samtökin vinna að fuglavernd.
Hann sagði að á síðasta ári hafi það gerst í fyrsta sinn að mýsnar byrjuðu að éta fullorðna flökkualbatrossa lifandi en um fjórðungur allra flökkualbatrossa heimsins heldur til á eyjunni. Hann sýndi myndir af blóðugum fuglum, til dæmis nokkrum sem mýsnar höfðu étið hluta af höfðinu af. „Mýsnar klifra bara upp á fuglana og éta þá hægt og rólega, þar til þeir drepast,“ sagði Anderson.
Mýsnar komu fyrst til eyjunnar fyrir um 200 árum með mönnum og hafa gert mikinn óskunda síðan.
29 tegundir sjófugla verpa á eyjunni og eru 19 þeirra í útrýmingarhættu.
Til að hægt verði að varpa sprengjum á eyjuna þarf að safna 29 milljónum dollara. Nú þegar hefur tekist að safna fjórðungi þess fjár.
Áætlunin gengur út á að senda þyrlur til eyjunnar og eiga þær að kasta 600 tonnum af eiturkúlum niður á hana. Markmiðið er að gera þetta veturinn 2027 en þá er varptíminn liðinn og mýsnar eru mjög svangar. Takmarkið er að drepa hverja einustu mús á eyjunni því ef svo færi að ein mús af hvoru kyni lifi þetta af, þá verður staðan sú sama aftur eftir einhvern árafjölda.