fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Eyjan

Einar slekkur í grillinu og Húsasmiðjan tekur við vörumerkjunum

Eyjan
Þriðjudaginn 7. maí 2024 16:05

Einar Long og Árni Stefánsson, forstjóri Húsasmiðjunnar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einar Long, sem rekið hefur Grillbúðina um árabil, hefur ákveðið að setjast í helgan stein og afhenda keflið áfram og mun Húsasmiðjan taka við þeim afbragðs vörumerkjum sem seld hafa verið í versluninni um 17 ára skeið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Helsta áhersla Grillbúðarinnar hefur verið á þýsku Landmann og Enders grillunum ásamt ýmsum tengdum vörum og fylgihlutum. Landmann grillin þekkja margir af gæðum og endingu og hafa verið í boði hjá Grillbúðinni frá upphafi. Þá hafa Enders grillin einnig notið fádæma vinsælda síðustu ár enda margverðlaunuð og mest seldu grillin í heimalandinu. Bæði Landmann og Enders grillin munu nú bætast við hið fjölbreytta úrval Húsasmiðjunnar.

„Það hafa verið forréttindi að geta aðstoðað Íslendinga við að grilla síðustu árin, enda erum við meiri grillþjóð en gengur og gerist. Erlendis grilla menn yfirleitt þegar veður er gott en við grillum hvernig sem viðrar. Á þessum tímamótum viljum við hjónin þakka öllum okkar viðskiptavinum fyrir tryggðina í gegnum árin en nú gefst okkur meiri tími til að sinna fjölskyldu og áhugamálum,“ segir Einar.

Húsasmiðjan tekur á þessum tímamótum við vörumerkjum Grillbúðarinnar og bætast þau þá við fjölbreytta flóru grilla og aukabúnaðar sem fyrir var hjá Húsasmiðjunni.

„Einar hefur verið ákveðinn kyndilberi í íslenskri grillmenningu og það er okkur heiður að taka við Landmann og Enders af honum og bjóða viðskiptavinum okkar upp á enn fjölbreyttara og betra úrval grilla og þeirra aukahluta sem fylgja. Einnig breikkar jafnframt úrval Húsasmiðjunnar í pallahiturunum, eldstæðum og í ýmsum ljósum. Þegar Einar viðraði þá hugmynd að við tækjum við keflinu af honum, var okkur ánægja að segja já,“ segir Árni Stefánsson, forstjóri Húsasmiðjunnnar.

„Nú er grilltíminn að hefjast fyrir alvöru og við hlökkum til að taka á móti grillurum og bjóða þeim áfram besta og fjölbreyttasta úrval grilla og aukahluta sem nauðsynlegir eru. Við höfum einnig verið að fara yfir vöruúrval Landmann og Enders og sjáum tækifæri á að efla enn vöruflóruna með nýjungum frá þessum sterku vörumerkjum,“ segir Árni.

Segir í fréttatilkynningunni að Húsasmiðjan muni á næstu dögum kynna Grillbúðina fyrir viðskiptavinum Húsasmiðjunnar með tilhlökkun um gott grillsumar fyrir alla grillara landsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson: Umsögn Landskjörstjórnar með öllu marklaus – Bara spurning um ásetning eða vanþekkingu

Þorsteinn Pálsson: Umsögn Landskjörstjórnar með öllu marklaus – Bara spurning um ásetning eða vanþekkingu
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Snorra nóg boðið – „Skólabókasafnið var allt þakið flennistórum regnbogafánum“

Snorra nóg boðið – „Skólabókasafnið var allt þakið flennistórum regnbogafánum“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Þýðir ekkert að æpa og góla hvert á annað – verðum að koma saman og við gerum það yfirleitt á miðjunni

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Þýðir ekkert að æpa og góla hvert á annað – verðum að koma saman og við gerum það yfirleitt á miðjunni
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar ætlar að kjósa annan flokk í vor

Varaþingmaður Samfylkingarinnar ætlar að kjósa annan flokk í vor
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Trumpisminn í Miðflokknum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Trumpisminn í Miðflokknum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Við erum að tala um valdaframsal þingsins til kjósenda – lýðræði í sinni tærustu mynd

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Við erum að tala um valdaframsal þingsins til kjósenda – lýðræði í sinni tærustu mynd
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Þessi bar er skíðalaust rými

Nína Richter skrifar: Þessi bar er skíðalaust rými
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Nú verður horft á olíufélögin – lækkar bensínið þegar heimsmarkaðsverð hrynur?

Orðið á götunni: Nú verður horft á olíufélögin – lækkar bensínið þegar heimsmarkaðsverð hrynur?