fbpx
Fimmtudagur 16.maí 2024
Eyjan

Katrín og kosningastjórinn afsala sér biðlaunum

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 11. apríl 2024 22:00

Katrín mun afsala sér biðlaunum á meðan forsetaframboðinu stendur og verður því tekjulaus eins og flestir af helstu keppinautum hennar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Katrín Jakobsdóttir á rétt á fullum forsætisráðherralaunum í kosningabaráttu sinni til embættis forseta Íslands. Bergþóra Benediktsdóttir, aðstoðarkona Katrínar sem forsætisráðherra, á einnig rétt á þriggja mánaða biðlaunum en hún mun stýra forsetaframboði Katrínar.  Þær hafa þó báðar afsalað sér laununum til 1. júní og munu því líkt og aðrir frambjóðendur sem starfa hjá hinu opinbera fara í ólaunað leyfi á meðan kosningabaráttunni stendur.

Uppfært: Í upphaflegu fréttinni kom fram að Katrín og Bergþóra ættu rétt á biðlaunum á meðan kosningabaráttunni stóð og gert ráð fyrir því að þær hyggðust þiggja launin líkt og lesa mátti út úr frétt Heimildarinnar á dögunum. Þær hafa hins vegar báðar ákveðið að afsala sér laununum, eins og áður segir, og er það hér með leiðrétt.

Biðlaun í sex mánuði

Heimildin greindi frá því fyrir skemmstu að Katrín yrði á fullum biðlaunum í sex mánuði og myndi hún þiggja full forsætisráðherralaun að meðtöldu þingfararkaupi. Mánaðarlegar launagreiðslur eru 2.680.000 krónur á mánuði.

Biðlaun þessi reiknast eftir því hvað ráðherra hefur verið starfandi lengi. Ef í eitt ár eða lengur eru biðlaunin sex mánuðir.

Kosningastjórinn líka

Bergþóra Benediktsdóttir, fyrrverandi aðstoðarkona Katrínar í forsætisráðuneytinu, mun stýra kosningabaráttu hennar á einnig rétt á biðlaunum. Eins og Samstöðin greindi frá fyrir skemmstu, nema þau einni og hálfri milljón króna á mánuði.

Framboð Katrínar er nú að verða skýrara. Auk Bergþóru mun Unnur Eggertsdóttir, fyrrverandi kosningastjóri Vinstri grænna í Reykjavík, starfa sem samskiptastjóri framboðsins.

Óvíst er hvort eða hvaða hlutverki Lára Björg Björnsdóttir, önnur fyrrverandi aðstoðarkona Katrínar, gegnir í baráttunni. En hún, ásamt Bergþóru, sá um kynningu á framboði Katrínar fyrir skemmstu. Eins og Bergþóra á Lára Björg rétt á biðlaunum.

Aðrir í launalausu leyfi

Fram hefur komið að nokkrir aðrir opinberir starfsmenn sem eru í framboði eru í launalausu leyfi á meðan framboðinu stendur.

Á meðal þeirra má nefna Höllu Hrund Logadóttur, orkumálastjóra, sem tilkynnti framboð sitt á sunnudag. Í gær var greint frá því að hún væri komin í launalaust leyfi frá störfum sínum hjá Orkustofnun.

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona er önnur sem fær ekki fjármagn frá hinu opinbera á meðan kosningabaráttunni stendur. Í síðustu viku greindi hún frá því að hún væri komin í tveggja mánaða launalaust leyfi frá störfum sínum í Þjóðleikhúsinu á meðan hún býður sig fram til forseta.

Á meðal annarra frambjóðenda sem starfa hjá hinu opinbera má nefna Helgu Þórisdóttur, forstjóra Persónuverndar, og Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðiprófessor við Háskóla Íslands.

Uppfært: Samkvæmt Bergþóru Benediktsdóttur hefur Katrín afsalað sér biðlaunum til 1. júní næstkomandi til þess að koma í veg fyrir að hún nyti aðstöðumunar. Það sama á við um Bergþóru sjálfa. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Áhugafólk um okur á Íslandi

Sigmundur Ernir skrifar: Áhugafólk um okur á Íslandi
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Dagur hlessa á Guðlaugi Þór – Hafi nú tekið skoðun Dags upp á sína arma sem hann hafi skammast yfir lengi

Dagur hlessa á Guðlaugi Þór – Hafi nú tekið skoðun Dags upp á sína arma sem hann hafi skammast yfir lengi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Steinunn Ólína – ríkisstjórnin er eins og plastpokamaður

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Steinunn Ólína – ríkisstjórnin er eins og plastpokamaður
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Sigurður skrifar: Ung, gröð og rík í flutningi Svedda tannar

Jón Sigurður skrifar: Ung, gröð og rík í flutningi Svedda tannar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reitir kynna áform um uppbyggingu á Kringlusvæði

Reitir kynna áform um uppbyggingu á Kringlusvæði
Eyjan
Fyrir 1 viku

Um 25 þúsund gestir heimsóttu Verk og vit

Um 25 þúsund gestir heimsóttu Verk og vit