fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Rebecca hvarf fyrir fimm árum – Þessi ljósmynd hefur vakið grunsemdir lögreglunnar

Pressan
Þriðjudaginn 20. febrúar 2024 04:36

Rebecca Reusch. Mynd:Lögreglan í Berlín.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir fimm árum hvarf Rebecca Reusch, 15 ára, sporlaust frá heimili eldri systur sinnar í Neuköln hverfinu í Berlín. Ekkert hefur spurst til hennar síðan. Málið hefur þótt mikil ráðgáta.

En nú hafa ákveðnar grunsemdir vaknað hjá lögreglunni, meðal annars á grundvelli myndarinnar sem fylgir þessari frétt.

Rebecca gisti hjá systur sinni aðfaranótt 18. febrúar 2019. Þegar hún mætti ekki í skóla daginn eftir var farið að óttast um hana og lögreglan hóf leit að henni. En hvorki leitin né umfangsmikil rannsókn lögreglunnar hafa borið árangur.

Fjölskylda Rebecca lét lögregluna fá ljósmynd af henni sem var deilt með almenningi í þeirri von að einhver hefði séð hana eða myndi sjá hana.

En það reyndist vera eitt alvarlegt vandamál við þessa mynd.

Það var búið að breyta henni. Búið var að breyta háralit Rebecca, augum, húð, vörum og nefi.

„Það er mjög grunsamlegt að fjölskyldan lætur lögregluna ekki fá ljósmynd sem getur komið að gagni við að finna stúlkuna,“ sagði hinn reyndi lögreglumaður Axel Petermann í samtali við Bild.

Lögreglan hefur einnig verið gagnrýnd fyrir að hafa dreift myndinni vitandi að henni hafði verið breytt. Christian Matzdorf, rannsóknarlögreglumaður, sagði í samtali við Mitteldeutsche Zeitung að lögreglan „geti bara unnið með það sem fjölskyldan lét henni í té“.

Matzdorf sagði það sína skoðun að fjölskyldan hafi ekki verið mjög samstarfsfús á þeim fimm árum sem rannsóknin hefur staðið yfir og sagðist hann hafa grun um ástæðuna: „Breytta ljósmyndin er eitt, en það virðist einnig vera sem fjölskyldan verndi þann sem liggur helst undir grun.“

Sá sem liggur helst undir grun er unnusti eldri systur Rebecca. Talið er að hann sé sá síðasti sem sá Rebecca á lífi.

Miðað við framburð systurinnar þá kom unnustinn heim úr samkvæmi klukkan 05.30 þennan morgun. Sjálf fór hún í vinnu klukkan 07 en leit ekki inn til Rebecca áður, en hún svaf í stofunni.

Það gerði unnustinn hins vegar klukkan 08.30 en þá var Rebecca horfin að hans sögn.

Hann var handtekinn tíu dögum eftir að Rebecca hvarf, grunaður um að hafa orðið henni að bana. Bæði hann og fjölskyldan hafa haldið sakleysi hans fram allan tímann. Hann hefur ekki verið ákærður í málinu og gengur laus en lögreglan telur hann einna líklegastan til að hafa staðið á bak við hvarf Rebecca.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“
Pressan
Í gær

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð
Pressan
Í gær

Dýr mistök á opnunardegi pitsastaðar – Greiddu viðskiptavinum fyrir að kaupa pítsu

Dýr mistök á opnunardegi pitsastaðar – Greiddu viðskiptavinum fyrir að kaupa pítsu
Pressan
Í gær

Kviðdómendur grétu við upptöku af síðustu augnablikum sjö ára stúlku

Kviðdómendur grétu við upptöku af síðustu augnablikum sjö ára stúlku
Pressan
Í gær

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans
Pressan
Fyrir 2 dögum

Draumaferð hjónanna til Maldíveyja breyttist í algjöra martröð

Draumaferð hjónanna til Maldíveyja breyttist í algjöra martröð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bandaríkjamenn sagðir hafna tillögu Rússlands um lausn Íransstríðsins

Bandaríkjamenn sagðir hafna tillögu Rússlands um lausn Íransstríðsins