fbpx
Föstudagur 17.maí 2024
Fókus

Magni fékk rauða spjaldið í sumar – Fluttur með hraði á spítala á Akureyri

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 14. nóvember 2023 16:30

Magni Ásgeirsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngvarinn Magni Ásgeirsson var keyrður á sjúkrahús aðfaranótt sunnudagsins 14. ágúst í sumar. Hann vaknaði á hótelherbergi á Sauðárkróki þangað sem að hann hafði keyrt eftir að hafa skemmt á Fiskideginum mikla. Þar var Eyrún konan hans stödd með son þeirra á íþróttamóti. Magni vaknaði um miðja nótt með verki, svima og ógleði og var á endanum fluttur með hraði í sjúkrabíl á sjúkrahús á Akureyri eftir stutt stopp á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. Eftir rannsóknir var Magni útskrifaður en fer sér núna aðeins hægar en áður og er að jafna sig.

Þetta kemur fram í hlaðvarpsþættinum Einmitt þar sem Magni er gestur Einars Bárðarsonar.

Alla leið í lokaþáttinn með milljónir að fylgjast með

Þeir Magni og Einar fara í gegnum Rockstar Supernova tímabilið og samvistirnar við Tommy Lee og félaga í Los Angeles. Hamaganginn sem því tímabili fylgdi. Þjóðin stóð á öndinni yfir þáttunum enda komst Magni alla leið í úrslitaþáttinn þar sem tekist var á um það hver yrði forsöngvari í hljómsveitinni Supernova. „Við fórum þrjú saman út í fyrstu umferðina, ég, Hreimur og Heiða Ólafs. Svo fórum við bara heim eftir tvær vikur í einhverskonar fyrirprufum,“ segir Magni.

Fékk símtal frá Hollywood á leiðinni á svið í Skagafirði

„Síðan kom bara símtal frá framleiðendum þegar ég var að labba inn í Miðgarð til að spila á balli með Á móti sól þarna um vorið 2006 og mér var boðið að koma út aftur.“ Það sem gerðist í kjölfarið er flestum kunnugt en Magni rifjar upp fjölda atvika sem hann hefur ekki sagt frá áður eins og það að hann og annar keppandi Toby Rand sem fylgdi Magna alveg í lokaþáttinn óskuðu eftir fundi með framleiðendum. „Ég var einhvern veginn settur í að tala fyrir okkar hönd og á fundinum óskuðum við eftir því að vinna alls ekki,“ segir Magni.

Vildi alls ekki enda í hljómsveit með Tommy Lee

Ástæðan fyrir því var sú að þeim Toby og Magna leist ekkert á það að taka að sér að syngja með hljómsveit Tommy Lee. „Þetta var bara léleg hjómsveit og lögin sem þeir voru búnir að vinna fyrir plötuna voru alls ekki góð“. En markmið þáttanna var að finna forsöngvara í hljómsveit Tommy og fylgja eftir þessari plötu með tónleikaferð um heiminn. Magni jós hinsvegar hljómsveitina lofi sem spilaði undir í þáttunum sjálfum sem skipuð er mörgum af eftirsóttustu tónlistarmönnum í heimi í dag.

Tommy Lee vildi símanúmerið hjá Ragnhildi Steinunni

Þegar komið þarna var komið við sögu og dagana fyrir lokaþáttinn þá var nokkur hópur Íslendinga kominn út til Los Angeles til að fylgjast með lokakvöldinu. Ein þeirra var fjölmiðlakonan Ragnhildur Steinunn. „Það var mjög fyndin upplifun því eina sem Tommy Lee og félagar voru að velta fyrir sér þarna síðasta daginn var hver þessi sjónvarpskona frá Íslandi væri og hvort ég gæti ekki útvegað þeim símanúmerið hennar.“

Síðan ræða þeir Einar og Magni auðvitað bransann frá öllum hliðum og álagið sem því fylgir að vera í 10 starfandi hljómsveitum og rauða flaggið sem hann fékk í ágúst þegar hann var keyrður með bláu ljósin á sjúkrahúsið á Akureyri og hvernig bóndasonurinn frá Borgarfirði eystri reynir að „minnka“ álagið.

Hlusta má á þáttinn í heild sinni hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Svona leit hún út fyrir breytingarnar

Svona leit hún út fyrir breytingarnar
Fókus
Í gær

Flutti í sumarbústað við Meðalfellsvatn eftir stórleik í þýskum þáttum

Flutti í sumarbústað við Meðalfellsvatn eftir stórleik í þýskum þáttum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram – „Þetta er mæðradagslúkkið í ár“

Vikan á Instagram – „Þetta er mæðradagslúkkið í ár“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég upplifði mig sem vandamál eða að ég væri fyrir, það er ekki góður staður að vera á“

„Ég upplifði mig sem vandamál eða að ég væri fyrir, það er ekki góður staður að vera á“